Fréttir

Ætla að brenna rusl og skapa orku

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar. vísir/einar

Forstjóri Orkuveitunnar segir að sorpbrennsla muni hefja rekstur hér á landi á næstu fimm til sjö árum. Verkefnið muni kosta marga milljarða og gæti sorpbrennslustöðin risið í grennd við íbúðarbyggð eins og tíðkast víða.

Fenúr, fagráð um endurnýtingu og úrgang, stóð fyrir fundi í Norræna húsinu fyrir hádegi þar sem möguleikinn á því að reisa hátæknisorpbrennslu á Íslandi var meðal annars til umræðu.

Orkuveitan og Sorpa vinna nú að því að koma slíkri stöð á laggirnar.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að stefnt sé að því að fjármagn verði fulltryggt á næstu tveimur árum og er stefnt að því að hefja rekstur í síðasta lagi árið 2033.

„Í dag flytur Ísland stóran hluta úrgangs úr landi með tilheyrandi kostnaði á meðan að mörg lönd sem við berum okkur saman við nýta þetta til orkugjafa. Það að flytja sorp út felur í sér kostnað og glötuð tækifæri og við erum beinlínis að flytja orkutækifæri úr landinu.“

Verkefnið muni kosta marga milljarða en Sævar minnir á að það kosti um einn og hálfan milljarð á ári að flytja sorp úr landi.

„Það kostar ansi marga milljarða að fara í þetta verkefni. Það er búið að þróa þetta verkefni í nokkur ár og við viljum lyfta því upp. Við erum að vinna mjög markvisst að því að þetta geti orðið að veruleika. Það er gríðarlegur ábati fyrir samfélagið að við bæði lækkum kostnað af þessum sorpflutningum og í leiðinni sköpum verðmæti fyrir samfélagið. Þannig geta orðið til græn störf og grænn iðnaður í kringum atvinnustarfsemi yrði við hlið svona hátæknibrennslu.“

Mögulegt verður að nýta varmann til húshitunar og stýranlegrar viðbótar við raf- og hitaveitukerfið. Stefnt er að því að binda kolefnið frá brennslu í berg með sambærilegri tækni og er nýtt af Carbfix.

„Það er algjörlega hægt að tryggja að þetta sé í rauninni í lokuðu ferli. Við höfum í rauninni einstaka tækni hér á Íslandi til að geta í rauninni fangað strauminn og umbreytt koltvíoxíðinu og öðru sem gengur frá þessu þannig að það fari ofan í jörðina og verði hluti af því bergi sem hér býr.“

Það kæmi jafnvel til greina að sorpbrennslan verði í grennd við íbúðarbyggð líkt og tíðkast víða.

„Nú eru sveitarfélögin í landinu í miklu samstarfi um að velja framtíðarstaðsetningu fyrir þetta og það er verið að vinna að hagkvæmum útreikningum um hvar þetta gæti verið og það er mikilvægt að hafa í huga að við erum búin að vera einmitt með föngun frá okkar orkuverum núna í tólf ár. Í öllum löndum sem við þekkjum þá eru slíkar brennslur í nábýli við þar sem sorpið verður til og þá þarf að tryggja að það sé gert á umhverfisvænan hátt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×