Lífið

Keppast um að minnast Stewarts

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Ian McKellen og Patrick Stewart hafa lengi verið góðir vinir.
Ian McKellen og Patrick Stewart hafa lengi verið góðir vinir. vísir

Fjölmargar stórstjörnur hafa mundað pennann eða lyklaborðið nánar tiltekið og lagt orð í belg til að minnast leikarans Patrick Stewart sem lést á miðvikudag 86 ára að aldri. Þar á meðal er Ian McKellen stórleikari en þeir félagar eru meðal annars hvað þekktastir fyrir að glæða persónurnar Magneto og Charles Xavier úr X-men myndunum lífi.

McKellen birti færslu á Facebook-síðu sinni í nótt þar sem hann ausir lofi yfir hinn látna Stewart og þakkar honum fyrir samfylgdina. 

„Umfram allt einkennir það Patrick að hafa verið fæddur og uppalinn í Jórvíkurskíri, þeirri stoltu sýslu í norðurhluta Englands sem hann unni fram til hins síðasta. Það mátti nema á hreimnum hans og þeirri sterku hreinskilni sem hann nýtti til að segja þér nákvæmlega hvað honum fannst og hvernig honum leið. Hann var með hjartað á erminni sem gerði hann að manni sem maður gat reitt sig á, dáðst að og í mínu tilviki elskað.“

Leikararnir hafi fyrst kynnst fyrir um fimmtíu árum þar sem þeir störfuðu báðir hjá the Royal Shakespeare Company í London. Fyrsta skýra minning McKellen af Stewart hafi átt sér stað nokkrum árum seinna þegar þeir rákust hvor á annan úti á götu í London. Þá tjáði Stewart honum að hann hafi fengið boð um að taka við aðalhlutverki í Star Trek.

Patrick Stewart og Sir Ian McKellen á góðri stundu.vísir

„Bandaríkin urðu hans annað heimili, þar sem hann kynntist sinni ástkæru Sunny sem annaðist hann í blíðu og stríðu, í gegnum súrt og sætt. En hann gleymdi aldrei uppruna sínum. Stoltasta afrek hins virtasta og ástsælasta leikara sinnar kynslóðar beggja vegna Atlantshafsins var skipun hans sem rektors Huddersfield-háskóla í Jórvíkurskíri,“ segir McKellen og tekur fram að kveðja Stewart af stóra tjaldinu á enn eftir að koma út og lokar sínum skrifum með því að minnast á Avengers: Doomsday sem kemur út rétt fyrir jól.

Fleiri hafa minnst Stewart og þakkað honum fyrir hans góðu verk. Til að mynda má nefna William Shatner sem flestir þekkja sem skipstjóra Kirk úr upprunalegu útgáfu Star Trek frá árunum 1966 til 1969. Patrick Stewart tók síðan við af honum árið 1987 þegar hann gerði Jean-Luc Picard skipstjóra að ógleymanlegri persónu. 

Shatner lifir Stewart þrátt fyrir að vera forveri hans sem skipstjóri í Star Trek. Hann segir Stewart hafa verið kollega, vin og stórkostlegan leikara.

„Kapteinn Picard var holdgervingur þess besta sem mannkynið hefur upp á að bjóða og það var maðurinn sem lék hann einnig. Ég ber mikla væntumþykju og aðdáun í hans garð. Hugur minn er hjá Sunny og fjölskyldu hans. Hans verður sárt saknað.“

Hugh Jackman, sem flestir þekkja sem stökkbreyttu veruna geðþekku Wolverine, minnist Stewart með mynd sem virðist hafa verið tekin við tökur fyrir myndina Logan sem sló rækilega í gegn.

„Í dag misstum við risa úr heimi leiksviðsins og hvíta tjaldsins. Að mínu mati einstakan vin og mann. Ég lærði svo margt af honum. Ég mun sakna þín, Patrick Stewart, alla mína daga.“

Seth Macfarlane, maðurinn á bak við Family Guy, Ted og American Dad, minnist Stewarts einnig og þakkar honum fyrir hans góða verk í fyrrnefndum þáttum og mynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.