Skoðun

Starfs­fólk Reykja­víkur­borgar er ekki til­rauna­verk­efni

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og Þorkell Heiðarsson skrifa

Í gær var fimmtíu starfsmönnum vísað á dyr hjá Reykjavíkurborg. Við þetta tækifæri sagði yfirmaður þeirra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, að með þessari ákvörðun séu þau „bara að minnka þetta kerfi“, að „pólitíkin tekur þarna ákvörðun um að setja þetta viðmið um 7,5 prósent og svo fólum við sviðsstjórum að útfæra á sínum sviðum hvernig þeir næðu þessu markmiði.“

Borgarstjóri hefur lagt áherslu á nauðsyn þess að taka til í rekstri Reykjavíkurborgar og að hún hafi verið kosin til þeirra verka. En það er grundvallarmunur á ábyrgri hagræðingu og því að láta starfsfólk bera allan þungann af síendurteknum niðurskurði eins og nú er gert.

Grundvallarmunur á hagræðingu og niðurskurði

Það er auðvelt að tala um hagræðingu þegar það er einhver annar sem missir vinnuna. Þegar lífsafkoma fólks er í húfi verða kröfur um vandaðan undirbúning, skýran rökstuðning og manneskjulega framkvæmd að vega þyngra en almenn fyrirheit um sparnað. Borgarstjóri getur ekki látið nægja að vísa til erfiðrar fjárhagsstöðu án þess að sýna fram á að ákvarðanir um fjöldauppsagnir séu nauðsynlegar og byggðar á traustum forsendum og leggja fram gögn því til stuðnings.

Viska og FÍN kalla eftir því að borgarstjórn geri ítarlega grein fyrir forsendum þeirra ákvarðana sem hún hefur tekið varðandi fjöldauppsagnir starfsfólks.

Af hverju fá sum að snúa aftur til starfa?

Það vekur sérstaka athygli að Reykjavíkurborg virðist þegar hafa boðið einstaklingum sem áður fengu uppsagnarbréf að snúa aftur til starfa, sumum þó tímabundið. Það kallar á áleitnar spurningar um undirbúning og forsendur uppsagnanna. Var búið að meta hvaða störf borgin gæti verið án? Hvaða þekking hefur tapast, hvaða þjónusta hverfur og hver mun sinna verkefnum starfsfólksins sem sagt hefur verið upp?

Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni borgarstjórnar. Það er óásættanlegt að segja fólki upp, sjá hvernig til tekst og kalla það síðan aftur til starfa þegar þörfin kemur í ljós.

Viska og FÍN kalla eftir því að borgarstjórn birti greiningu á þeim verkefnum sem unnin voru af starfsfólki sem sagt hefur verið upp, sem og hvaða skerðing hefur orðið á þjónustu borgarinnar í kjölfarið.

Við krefjumst greiningar á ætluðum sparnaði

Borgarstjóri hefur talað um háar fjárhæðir í ætluðum sparnaði en starfsfólk og borgarbúar eiga rétt á að sjá heildarmyndina. Hvað sparast í raun þegar tekið hefur verið tillit til uppsagnarkostnaðar, endurráðninga og útvistaðrar þjónustu? Verkefnin hverfa ekki þótt fólkinu sem sinnti þeim sé sagt upp. Þau færast einfaldlega á færri hendur eða eru keypt annars staðar frá. Hagræðing er aðeins árangursrík ef hugsun býr að baki henni. Ekki nægir að hún líti pólítiskt vel út á blaði.

Viska og FÍN kalla eftir því að borgarstjórn birti heildstæða greiningu á raunverulegum sparnaði þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til.

Traust rofið milli borgarstjóra og starfsfólks

Hildur Björnsdóttir er ekki aðeins kjörinn fulltrúi. Hún er jafnframt framkvæmdastjóri stærsta vinnuveitanda landsins og ber í því hlutverki sérstaka ábyrgð á velferð og líðan starfsfólks borgarinnar. Þær uppsagnir sem farið hafa fram undanfarna mánuði einkennast öðru fremur af fullkomnu virðingarleysi við starfsfólk og hörku í framkvæmd. Þegar hver uppsagnarhrinan rekur aðra og óvissa um framtíð starfa er viðvarandi rofnar traust milli borgarstjóra og starfsfólks hennar.

Viska og FÍN gera sér grein fyrir því að góð fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er samofin hagsæld borgarbúa. Við krefjumst þess hins vegar að borgin vandi undirbúning, virði réttindi starfsfólks og komi fram við það af virðingu. Enn fremur að borgin upplýsi borgarbúa um raunverulegan sparnað og áhrif fjöldauppsagna á þjónustu við íbúa. Þessu hefur ekki verið svarað.

Reykjavíkurborg verður sterkari með ábyrgri stjórnun, vönduðum ákvörðunum og starfsfólki sem getur treyst yfirmanni sínum, ekki illa ígrunduðum og flötum niðurskurði.

Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki skiptimynt í hagræðingaráformum borgarstjórnar. Opinberir starfsmenn búa við lakari launakjör en starfsfólk á almennum markaði. Í áraraðir hefur þessi launamunur verið réttlættur með því að vísa í starfsöryggi á opinberum markaði. Þessi tilraunastarfsemi borgarstjórnar staðfestir að allt tal um starfsöryggi opinberra starfsmanna er hjóm eitt.

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku – stéttarfélags

Þorkell Heiðarsson formaður FÍN




Skoðun

Sjá meira


×