Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Lovísa Arnardóttir skrifar 28. október 2026 07:58 Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, segir minni áfengisneyslu samræmast markmiðum ríkisins. Óljóst sé þó hversu mikið minni neysla skýri sölusamdrátt Vínbúðanna. Vísir/Arnór Trausti Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri ÁTVR segir til skoðunar að hefja heimsendingu á vörum Vínbúðarinnar. Það væri aðallega til að auka þjónustu og aðgengi að vöruúrvali sem er meira í netverslun þeirra en í verslunum þeirra.
Sala áfengis í Vínbúðunum dróst saman um 7,5 prósent í lítrum talið fyrstu níu mánuði ársins, að sögn forstjóra ÁTVR. Þorgerður sagði á mánudag minni áfengisneyslu samræmast markmiðum ríkisins. Óljóst sé þó hversu mikið minni neysla skýri sölusamdrátt Vínbúðanna. Sama dag var tilkynnt um hagræðingu hjá ÁTVR. Sviðum yrði fækkað um eitt og staða eins framkvæmdastjóra lögð niður, auk þess sem stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð var fækkað um tæplega sex, í hagræðingaraðgerðum. Með þeim er áætlað að spara um 150 milljónir króna á ári. Rætt var við Þorgerði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær um þessi mál en einnig um heimsendingu á vörum þeirra og Ölgerðina. Áfengisneysla dregist saman um allan heim Þorgerður segir erfitt að sjá nákvæmlega hver skýringin á samdrætti í sölu sé. Þau sjái það í nágrannalöndunum að neysla áfengis sé að dragast saman og tölur Hagstofunnar bendi til þess að það sé líka þannig á Íslandi. Í dag séu fleiri aðilar á markaði en áður og það gæti þó líka skýrt samdrátt hjá þeim því salan fari annað. Áfengisneysla hafi dregist saman um allan heim en það sé þó líklega ekki um 7,5 prósent. Hvað varðar hagræðingu segir Þorgerður að það þurfi að bregðast við breytingum í rekstrarumhverfi og eitt af þeirra hlutverkum sé að vera með ábyrgan rekstur. Þá sé hagræðing óhjákvæmileg. Krafa um hagræðingu Hún segir að frá því hún tók við fyrir ári hafi verið unnið að nýrri stefnu og rekstrarumhverfið skoðað. Þá sé einnig krafa frá stjórnvöldum um að hagræða í rekstri. „Það er ljóst að við þurfum að draga saman í rekstrarkostnaði,“ segir hún. Þorgerður segir alltaf erfitt að fara í hagræðingaraðgerðir sem feli í sér uppsagnir og það hafi gott fólk kvatt þau í gær. Það sé alltaf erfitt að kveðja gott fólk. Þorgerður segir markmið ríkisins í lýðheilsumálum að áfengisneysla sé lítil og ábyrg og hlutverk ÁTVR sé að stuðla að því að skaðsemi neyslunnar sé sem minnst og verja ungt fólk með því að stýra neyslunni. Þegar neysla dragist saman sé það í takt við markmið ríkisins. Þorgerður segir ekki hafa verið teknar ákvarðanir um fækkun útibúa eða breytingu á afgreiðslutíma eða þjónustu. Hún segir að dregið hafi úr aukavinnu í tímavinnu til að reyna að koma í veg fyrir fækkun fastra starfsmanna. Gætu hafið heimsendingar „Við erum með netverslun en höfum ekki verið með heimsendingar hingað til,“ segir hún og að það sé gott aðgengi að vöruvali á netinu og það sé meira en í verslunum. Birgjar geti skráð vörur sem eru ekki í hillum verslana og viðskiptavinir hafi þannig meira úrval og geti pantað í hvaða verslun sem er. Hún segir það til skoðunar að fara í heimsendingu og þá fyrst og fremst „til að bæta þjónustuna þannig að það verði aðgengi að meira vöruúrvali“. Þorgerður segir áætlað að netverslanir séu með um tíu prósenta markaðshlutdeild en það skorti gögn til að meta það með heildstæðum hætti. Vara sem nýtur meiri eftirspurnar fái meira hillupláss Þorgerður ræddi að lokum stöðu Ölgerðarinnar og hillupláss í verslunum ÁTVR en markaðsráðandi staða þeirra var nýlega til umfjöllunar í Kveik. Þorgerður segir smábrugghúsum ekki markvisst haldið frá hilluplássinu . Regluverkið sé bundið í lög, reglur og reglugerðir og það ríki jafnræði en það þýði ekki endilega að allir fái allt jafnt, heldur jöfn tækifæri. Þorgerður segir að vara sem nýtur meiri eftirspurnar fái meira pláss óháð því frá hverjum hún kemur. Ölgerðin selji um 50 prósent seldra lítra hjá ÁTVR í bjór en þeir séu ekki með 50 prósent af bjórplássinu. Hún segir það ekki hlutverk ÁTVR að fylgjast með markaðshlutdeild fyrirtækja, Samkeppniseftirlitið geri það, og að þau verði að fylgja opinberum reglum um hverjir fá hillupláss, hvernig og hver framsetningin er. Vara sem er seld mikið á hverjum degi fái meira pláss. Þau séu verslun og þegar komi að birgðahaldi og vörustýringu þurfi þau að sinna því út frá viðskiptalegum sjónarmiðum þó svo að Vínbúðin sé ekki hefðbundin verslun. Þorgerður útskýrði svo ferlið við það að koma nýrri vöru í sölu. Viðtalið er hægt að hlusta á að ofan.
Áfengi Netverslun með áfengi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík síðdegis Ölgerðin (Bera) Neytendur Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira