Innlent

Auka­fundur borgar­full­trúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu upp­sagna og niður­skurðar

Oddur Ævar Gunnarsson, Kjartan Kjartansson og Telma Tómasson skrifa
Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Aukafundur stendur nú yfir í ráðhúsi Reykjavíku sem rætt er um uppsagnir á borgarstarfsmönnum og frekari hagræðingaraðgerðir. Tugir starfa eru undir samkvæmt heimildum fréttastofu.

Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Samkvæmt heimildum fréttastofu er umfjöllunarefni fundarins hagræðingaraðgerðir og uppsagnir starfsfólks. 

Niðurskurðurinn nær til allra sviða borgarinnar fyrir utan skóla- og frístundasviðs og velferðasviðs sem urðu fyrir hnífnum í sumar.

Ekki hafa fengist svör frá borgarstjórnarfulltrúum vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða ekki veitt viðtöl um málið fyrr en að loknum aðgerðum sem standa munu yfir í dag. 

Hátt í tuttugu manns var sagt upp hjá borginni í júní og tugum í ágúst. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur sagði í ítarlegu viðtali við fréttastofu í byrjun september að frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar væru fram undan hjá Reykjavíkurborg.


Tengdar fréttir

Fleiri upp­sagnir og óvissa um Borgar­línuna

Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×