Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar 27. október 2026 07:02 Í desember 2025 kynntu stjórnvöld aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla. Þar var staða íslenskra fjölmiðla dregin skýrt fram: „Íslenskir fjölmiðlar eiga undir högg að sækja. Fyrir vikið á íslenskt samfélag undir högg að sækja.“ Þessu mati er ég sammála. Sterkir og sjálfstæðir fréttamiðlar skipta samfélagið máli. Þeir veita stjórnvöldum og atvinnulífi aðhald og stuðla að upplýstri samfélagsumræðu. Ein aðgerð áætlunarinnar sneri að skattlagningu alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Verkefnið var á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins og tillögur áttu að liggja fyrir vorið 2026. Miðað við umfang erlendra tæknirisa á íslenskum auglýsingamarkaði er þetta einn mikilvægasti liður áætlunarinnar. Nú er komið haust og ljóst að tillögurnar koma ekki fyrir þingið á þessu ári. Mynd úr aðgerðaráætlun stjórnvalda: Hvorki greining né tillögur Ég óskaði eftir upplýsingum frá ráðuneytinu um stöðu verkefnisins. Svarið var á þá leið að ekki hafi farið fram heilstæð greining á skattlagningarleiðum. Hvorki liggi fyrir mat á mögulegum tekjum ríkissjóðs né tillögur um ráðstöfun þeirra. Orðrétt segir: „Ekki hafa verið unnin minnisblöð, greiningar eða tillögur vegna aðgerðarinnar.“ Ráðuneytið upplýsir jafnframt að frumvarp um slíka skattlagningu sé ekki á þingmálaskrá og ekki sé unnt að segja hvort eða hvenær það verði lagt fram. Ekkert liggur því fyrir um framlagningu málsins á þessu ári eða á vorþingi 2027. Stjórnvöld lögðu ríka áherslu á að styrkja íslenska fjölmiðla. Að enn liggi hvorki fyrir greiningar né tillögur í þeim efnum samræmist engan veginn því sem boðað var. Hvað skýrir þessa töf á einum mikilvægasta lið aðgerðaáætlunarinnar þegar önnur ríki hafi þegar byrjað að skattleggja tæknirisana og það fyrir mörgum árum? Önnur ríki hafa þegar farið þessa leið Í Austurríki hefur frá ársbyrjun 2020 verið lagður 5% skattur á tilteknar stafrænar auglýsingatekjur stórra alþjóðlegra fyrirtækja sem tengjast notendum í landinu. Frakkland leggur 3% skatt á tiltekna stafræna þjónustu, meðal annars markvissar netauglýsingar, og Bretland 2% skatt á tilteknar tekjur samfélagsmiðla, leitarvéla og netmarkaðstorga. Gildissvið og tekjumörk eru ólík, en þessi ríki sýna að sértæk skattlagning slíkrar starfsemi er þegar í framkvæmd. Hvað gæti þetta þýtt fyrir Ísland? Samkvæmt Hagstofu Íslands runnu tæpir 15 milljarðar króna til erlendra miðla vegna auglýsingakaupa árið 2024, eða 51% alls auglýsingafjár. Til viðmiðunar jafngilda 5% af 15 milljörðum um 750 milljónum króna á ári. Þetta er sett upp sem einfalt reiknidæmi en ekki mat á væntum skatttekjum. Hluti auglýsingafjárins fer í markaðssetningu utan Íslands og tekjurnar myndu ráðast af gildissviði skattsins, tekjumörkum og útfærslu. Engu að síður gefur stærðargráðan fullt tilefni til að leggja áherslu á að vinna greininguna og að hefja skattlagningu. Það er ljóst að erlendir tæknirisar á borð við Meta og Alphabet taka til sín stóran hluta íslensks auglýsingafjár án þess að standa undir íslenskri fréttamennsku, dagskrárgerð og menningarumfjöllun með sama hætti og innlendir fjölmiðlar. Ljúka þarf vinnunni Það er eðlilegt að stjórnvöld gefi sér tíma til að vanda skattabreytingar. Þegar boðaður skilafrestur er liðinn verður hins vegar að vera hægt að upplýsa hvað hefur verið gert, hvað stendur út af og hvenær niðurstöðu er að vænta. Íslenskir fjölmiðlar taka rekstrarákvarðanir á hverjum degi við erfiðar aðstæður. Þeir þurfa að geta treyst því að boðuðum aðgerðum stjórnvalda sé fylgt eftir. Tími aðgerða er löngu kominn. Höfundur er framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Sýn. Vísir er í eigu Sýnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun