Íslenski boltinn

Treyja Gylfa fór á milljón

Valur Páll Eiríksson skrifar
Treyjan sem Gylfi klæðist hér seldist á eina milljón króna.
Treyjan sem Gylfi klæðist hér seldist á eina milljón króna. Vísir/Anton Brink

Góðgerðatreyja Víkings og 66° Norður sem Gylfi Þór Sigurðsson klæddist í lokaleik tímabilsins í 2-2 jafntefli við Fram seldist á eina milljón króna. Alls söfnuðust tæplega þrjár milljónir sem renna óskipt til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkingsliðsins.

Víkingur stóð að uppboði á treyjum leikmanna liðsins í lokaleiknum. Uppboðið hófst þegar leikur Víkings hófst klukkan 16:15 á laugardaginn var og það stóð til klukkan 18:00 í gærkvöld.

Treyja Gylfa Þórs Sigurðssonar seldist fyrir langhæstu fjárhæðina, eina milljón króna slétt. Treyja Óskars Borgþórssonar seldist á 350 þúsund krónur, Valdimars Ingimundarsonar á 225 þúsund krónur og Helga Guðjónssonar á 210 þúsund krónur.

Treyjur leikmanna Víkings seldust samanlagt á 2.983.000 krónur. Sú upphæð rennur óskipt til markvarðar liðsins Ingvars Jónssonar sem berst við krabbamein.

Ingvar mætti með liðsfélögum sínum á leik laugardagsins og lyfti þar Bestu deildar skildinum ásamt fyrirliðum liðsins Oliver Ekroth og Gylfa Þór.

Sjá má niðurstöðu uppboðsins hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×