„Við verðum að líta í eigin barm“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2026 17:07 Harry Maguire gengur af velli eftir tapið á Old Trafford í dag. Annar skellur liðsins á nokkrum dögum. Getty/Ash Donelon Harry Maguire var fyrirliði Manchester United í dag eftir að Bruno Fernandes var settur á bekkinn en United liðið steinlá þá 3-0 á heimavelli á móti Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni. Hann ræddi málin við fjölmiðla eftir leikinn. „
Ég er mjög vonsvikinn. Við komum í leikinn til að ná í sigur fyrir stuðningsmennina okkar og að fá aftur á okkur mark úr föstu leikatriði í fyrsta markinu er ekki nógu gott,“ sagði Harry Maguire við BBC MOTD. „Við verðum að halda einbeitingu og þegar hlutirnir ganga ekki upp má maður ekki vera að gefa föst leikatriði. Annað markið eru mistök og svo erum við 2-0 undir í hálfleik og náum ekki að bregðast við,“ sagði Maguire. „Það vantar sjálfstraust eins og er – úrslitin, frammistaðan, við verðum að líta í eigin barm og finna eitthvað innra með okkur til að leggja meira af mörkum til liðsins,“ sagði Maguire. „Það á við um hvern einasta leikmann. Þegar hlutirnir ganga ekki upp verður maður að gera grunnatriðin vel og að fá á sig mark úr föstu leikatriði, einföldu föstu leikatriði, er hvergi nærri nógu gott,“ sagði Maguire. „Þetta snýst um hvern og einn – við verðum að standa saman sem lið. Það er svo snemma á tímabilinu – við getum enn átt gott tímabil en eitthvað verður að breytast fljótt. Þetta hafa verið vonbrigði, það verður að breytast,“ sagði Maguire. Maguire var spurður út í stuðning leikmanna við knattspyrnustjórann: „Við stöndum heils hugar á bak við Michael [Carrick], hann kom inn í liðið á síðasta tímabili, sneri genginu við og kom okkur í Meistaradeildina á þessu tímabili. Sem einstaklingar erum við ekki að spila nógu vel,“ sagði Maguire sem var einnig spurður út í bekkjarsetu hans sjálfs á síðustu leiktíð. „Þegar maður spilar fyrir þetta félag veit maður að maður er tveimur eða þremur leikjum frá því að slíkt gerist. Maður verður að finna eitthvað innra með sér til að hjálpa félaginu, hjálpa liðinu og koma okkur út úr þessu. Við munum fara að vinna fótboltaleiki en við verðum að gera það fljótt,“ sagði Maguire.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Sjá meira