Handbolti

Reynir Þór með stór­leik í þýsku Bundesligunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Reynir Þór Stefánsson átti stórleik í kvöld.
Reynir Þór Stefánsson átti stórleik í kvöld. Getty/Andrzej Iwanczuk

Íslenski landsliðsmaðurinn Reynir Þór Stefánsson átti mjög flottan leik í þýsku Bundesligunni í handbolta í kvöld.

Lið hans Melsungen vann þá eins marka útisigur á HBW Balingen-Weilstetten, 27-26, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik.

Reynir Þór skoraði átta mörk úr níu skotum í leiknum og öll mörkin hans komu utan af velli.

Reynir var markahæstur í sínu liði en hann skoraði tveimur mörkum meira en þýski landsliðsmaðurinn Johannes Golla.

Melsungen er í fimmta sæti eftir annan deildarsigurinn í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×