Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. október 2026 13:57 Öryggi íbúa Norðurlands vestra byggir á því að lögregla sé til staðar, þekki samfélagið og geti brugðist við þörfum þess, segir í umsögn starfsmanna Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Vísir/Vilhelm Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta. Að mati starfsmanna hefur ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.
Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að lögregluembættum verði fækkað um sex, úr níu í þrjú. Að mati starfsmanna hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn fækkunarinnar eða að fyrirhuguð breyting muni efla löggæslu á svæðinu. Sjá einnig: Lögregluembættum fækkað verulega Í morgun var greint frá því að Lögreglufélag Vestfjarða hefði sömuleiðis gert athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar dómsmálaráðherra og telur það brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta. Í samráðsgátt eru tólf umsagnir við frumvarpsdrögin en auk þeirra ofannefndu má finna þar umsagnir Ísafjarðarbæjar, Hvalfjarðarsveitar, Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra svo eitthvað sé nefnt. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra í sameiningu lögregluembætta en áður stóð til.Ívar „Frumvarpsdrögin taka ekki nægilegt mið af eðli löggæslu í dreifbýli, mikilvægi staðbundinnar ábyrgðar og þeirri samfélagslöggæslu sem byggð hefur verið upp í landshlutanum. Almenn markmið um stærri og öflugri einingar koma ekki í stað rökstuddrar greiningar á því hvernig þjónusta við íbúa hvers svæðis verður tryggð og bætt,“ segir í umsögn starfsmanna Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Starfsmennirnir leggja til að fallið verði frá fyrirliggjandi sameiningartillögum lögregluembætta og segja að markmið um stærri og öflugri einingar komi ekki í stað rökstuddrar greiningar á því hvernig þjónusta við íbúa verði tryggð og bætt. Telji þeir nauðsynlegt að endurskoða drögin í grundvallaratriðum „með svæðisbundinni þarfagreiningu, raunverulegu samráði, lögbundinni vernd nærþjónustunnar og tryggri fjármögnun.“
Lögreglan Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira