Viðbrögð við bókasafnstillögu bendi til læsisvanda Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2026 15:44 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri telur viðbrögð við tillögu um mögulega fækkun útibúa Borgarbókasafnsins benda til þess að læsisvandi sé líka meðal fullorðinna. Vísir/Lýður Valberg Viðbrögð við tillögu um að kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins bendi til þess að læsisvandi sé líka meðal fullorðinna, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún bregst við harðri gagnrýni á tillöguna og segir markmiðið að efla söfnin og bæta þjónustuna. „
Alltof mörg börn glíma við læsisvanda - en það virðist fullorðna fólkið gera líka, ef marka viðbrögð við tillögu menningarráðs um bókasöfn borgarinnar,“ skrifar Hildur í færslu á Facebook. Hún segir látið að því liggja að borgin hyggist loka bókasöfnum í hagræðingarskyni. Markmiðið sé hins vegar að efla söfnin, rýna reksturinn og kanna hvort draga megi úr yfirbyggingu í þágu betri þjónustu. Rithöfundar og borgarfulltrúar gagnrýndu hugmyndina Tillagan sem Hildur vísar til var lögð fram af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar á fundi menningarráðs 21. október. Þar er meðal annars lagt til að kannað verði hvort veita megi sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri rekstrareiningum eða breyttu fyrirkomulagi, auk samnýtingar við skólabókasöfn. Afgreiðslu tillögunnar var frestað. Hvorki hefur verið samþykkt að ráðast í úttektina né fækka útibúum. Hugmyndin hefur mætt harðri andstöðu, meðal annars frá rithöfundum og borgarfulltrúum minnihlutans. „Það er menningarleg uppgjöf og hnignun að loka bókasafni,“ skrifaði Andri Snær Magnason rithöfundur. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, rithöfundur og tónlistarmaður, lagði áherslu á að bókasöfn væru sameiginleg rými þar sem allir væru velkomnir án þess að þurfa að kaupa eitthvað. „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi.“ Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í borginni, gagnrýndi sérstaklega að reikna ætti kostnað á hvern gest. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, dró einnig í efa slíka mælikvarða og benti með háðsádeilu á að hlutverk safnanna næði langt út fyrir útlán bóka. Rúnar segir ætlunina að efla þjónustuna Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs, hefur einnig brugðist við gagnrýninni. Hann sagði tilgang tillögunnar vera að kanna hvernig bæta mætti þjónustuna og gera söfnin að meira aðdráttarafli fyrir börn og ungmenni. Sameining rekstrareininga gæti að hans sögn haft góð áhrif á bæði þjónustu og aðgengi. Hann hafnaði því að tillagan gengi út á að minnka þjónustuna. „Við ætlum að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar.“ Vísar til Helsinki og Osló Hildur vísar í færslu sinni til samanburðar við bókasöfn í nágrannalöndum. Hún segir Reykjavík og Helsinki hafa nánast sama safnafjölda á íbúa en skráðar heimsóknir séu nærri fjórfalt fleiri í Helsinki. Osló hafi færri safnstöðvar á íbúa en Reykjavík en rúmlega tvöfalt fleiri heimsóknir. Hildur vill efla hlutverk bókasafnanna sem samfélagshúsa og gera þau að meira aðdráttarafli fyrir börn og ungmenni. Skoða eigi staðsetningu, opnunartíma og þjónustu til að fjölga notendum.Vísir/Vilhelm „Bókasöfnin eru mörg hver mikilvæg þungamiðja hverfanna. Þau hafa víða þróast í átt að því að vera samfélagshús þar sem fólk kemur saman.“ Hún segir borgina vilja efla þetta hlutverk og gera söfnin að enn öflugra aðdráttarafli fyrir börn og ungmenni. „En til þess að svo geti orðið þarf að hugsa í lausnum, vanda til verka og nýta hverja krónu með skynsamlegum hætti.“
Borgarstjórn Menning Reykjavík Bókmenntir Skóla- og menntamál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira