Körfubolti

Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hvera­gerði líka í fall­baráttu?“

Sindri Sverrisson skrifar
Nablinn gladdist með Grindvíkingum yfir Íslandsmeistaratitlinum síðasta vor en segir liðið það versta í Bónus-deildinni sem stendur eftir skelfilega byrjun á tímabilinu.
Nablinn gladdist með Grindvíkingum yfir Íslandsmeistaratitlinum síðasta vor en segir liðið það versta í Bónus-deildinni sem stendur eftir skelfilega byrjun á tímabilinu. Samsett/Sigurður Ingi Pálsson

Andri Már Eggertsson, eða Nablinn, tók fram grillspaðann og grillaði fimm verstu liðin í Bónus-deild karla í körfubolta þessa stundina. Hann setti Íslandsmeistara Grindavíkur í versta sætið.

Andri sýndi enga vægð þegar hann fór yfir fimm verstu liðin í Körfuboltakvöldi Extra á Sýn Sport Ísland í gærkvöld, eins og sjá má í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Nablinn grillaði fimm verstu liðin

Andri setti Njarðvík, Sindra, Stjarnan, Ármann og Grindavík á lista yfir fimm verstu liðin og hafði sín rök fyrir því.

Verstu liðin í Bónus-deild karla:

5. Njarðvík

„Þeir eru búnir að vera með „Mario Matasovic“-afsökunina í núna að verða ár. Þeir þurfa að rífa sig í gang og Bandaríkjamaðurinn þeirra, Makye Richard, verður aðeins að fara að slaka á TikTok og fara að koma með sigur á vellinum.“

4. Sindri

„Þeir voru fínir á móti ÍR en þetta eru of stuttir kaflar. Áttu einn kafla á móti Keflavík. En þetta er ekkert meira en það. Þeir þurfa betri og lengri kafla ef þeir ætla ekki niður.“

3. Stjarnan

„Þetta hefur byrjað hræðilega. Þeir eru búnir að skipta um Bandaríkjamenn og eru að reyna að bregðast við. Við höfum ekki fengið að sjá Emil Barja-boltann sem við þekkjum frá því að hann gerði kvennalið Hauka að Íslandsmeisturum.“

2. Ármann

„Lélegasta liðið þannig lagað, á pappír. En við munum hvernig umræðan var í fyrra. Þeir byrjuðu mjög illa og allir héldu að þeir færu lóðrétt niður. En nú er KKÍ að innrétta skrifstofur fyrir þann pening sem Ármenningar eyddu í félagaskipti á síðasta tímabili. Þeir skiptu náttúrulega heilu liði út. Ef þeir gera það ekki aftur – og KKÍ getur þá kannski farið í árshátíðarferð erlendis – þá bara falla þeir.“

1. Grindavík

„Eða Krísuvík eins og einhverjir eru farnir að kalla þá. Það hefur gengið bölvanlega hjá þeim og núna síðast voru þeir að falla út gegn „afreksakademíu MK“ í Kópavoginum [gegn Breiðabliki í bikarkeppninni]. Það er auðvitað bara fyrir neðan allar hellur. Maður spyr sig, ætlar Lárus Jónsson [aðstoðarþjálfari Grindavíkur og bæjarfulltrúi í Hveragerðisbæ] að fella Þór Þorlákshöfn og Grindavík á tveimur árum? Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu? Það bara hlýtur að vera.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×