Skoðun

Gnexit Við­reisnar

Bergþór Ólason skrifar

Það er ekki á hverjum degi sem þingmaður segir sig úr þingflokki og gerir síðan skriflegan samning um að halda áfram að vera í honum. Eða svona næstum því.

En Jóni Gnarr og Viðreisn tókst það.

Jóni gengur álíka vel að yfirgefa þingflokk Viðreisnar og Bretum gekk að yfirgefa Evrópusambandið á sínum tíma, en lengi skal yfirvaldið reyna.

Jón er nú orðinn sjálfstæður þingmaður. Svo sjálfstæður að hann þurfti að fá samþykki fyrrverandi félaga sinna fyrir því hvernig hann ætlar að haga hinu nýfengna sjálfstæði.

Samningurinn er stórmerkilegt plagg.

Jón skuldbindur sig til að styðja ríkisstjórnina, mæta í mikilvægar atkvæðagreiðslur og halda áfram að sinna tilteknum nefndarstörfum. Á móti fær hann áfram aðgang að sérfræðiaðstoð þingflokks Viðreisnar og Viðreisn kallar inn varamann fyrir hans hönd á nefndarfundi og í fjarveru hans frá Alþingi. Flestum hefði þótt nóg að segja hið síðastnefnda upphátt til að átta sig á fáránleikanum.

Hann er sem sagt farinn úr þingflokknum, en þingflokkurinn er ekki alveg farinn úr honum.

Þetta minnir óneitanlega á hjón sem hafa ákveðið að skilja en gera um leið samning um að búa áfram saman.

En rúsínan í pylsuendanum er lokamálsgrein samningsins.

Þar segir að hann verði sendur forseta Alþingis og skrifstofu þingsins til formlegrar skráningar.

Til formlegrar skráningar!?

Er verið að þinglýsa sjálfstæði þingmannsins eða eignarhaldi þingflokksins á atkvæði hans í þingsal? Er þingmaðurinn kominn á sérstaka skrá yfir frjálsa menn í föstu sambandi?

Og hvers vegna að senda plaggið til forseta Alþingis?

Á forsetinn að gerast trúnaðarmaður í þessu pólitíska sambúðarslitamáli? Er honum ætlað að varðveita samninginn, fylgjast með efndum og úrskurða um umgengnisrétt Viðreisnar við atkvæði Jóns?

Hvað gerist ef Jón vaknar einn morguninn með sjálfstæða skoðun?

Hringir Pawel þá í forseta Alþingis og tilkynnir samningsbrot? Verður boðað til sáttafundar? Eða fær Jón áminningu frá skrifstofu þingsins fyrir óheimila notkun atkvæðis í þingsal?

Þetta kallar í raun á nýtt embætti innan þingsins, eins konar sýslumann.

Þar mætti skrá þingmannaskilnaði, staðfesta áframhaldandi tryggð og gefa út vottorð um sjálfstæði með fyrirvara um samþykki fyrrverandi þingflokks.

Í stjórnarskránni segir hins vegar að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína.

Sú einfalda regla hefur dugað íslensku þingræði ágætlega. En nú færumst við fram á veginn. Sannfæringin hefur fengið fjögurra kafla samning, tvær undirskriftir og skráningarbeiðni hjá forseta Alþingis.

Eftir stendur auðvitað spurning um tilganginn.

Getur verið verið að innri mein þeirra í Viðreisn séu orðin svo illvíg að menn óttist að fleiri stökkvi frá borði ef viðskilnaðurinn við Jón verður alger? Það þurfi að forma millileið til að forðast þeirra eigin litla Gnexit.

Fyrir Jón sjálfan gæti þetta bara snúist um að losna við þingflokksfundina, þar er víst ekki mikið stuð.

Höfundur er þingmaður Miðflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×