Enski boltinn

Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast

Andri Broddason skrifar
Pierre Sage, þjálfari Crystal Palace, fékk vægan skell gegn erkifjendunum um helgina.
Pierre Sage, þjálfari Crystal Palace, fékk vægan skell gegn erkifjendunum um helgina. Gareth Fuller/Getty Images

Crystal Palace hefur ekki byrjað tímabilið frábærlega og situr liðið í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið tapaði 5-0 gegn erkifjendunum í Brighton um helgina og virðist aukinn þrýstingur vera á Pierre Sage, þjálfara liðsins.

Pierre Sage var ráðinn til félagsins í sumar eftir að Oliver Glasner hætti sem þjálfari liðsins. Það er erfitt að koma til félags þar sem þjálfaranum á undan gekk vel en Glasner vann Sambandsdeild Evrópu með Crystal Palace og tryggði félaginu sæti í Evrópudeildinni á þessu tímabili.

Það hefur þó verið erfitt fyrir lið Crystal Palace að verjast en ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni hefur fengið á sig fleiri mörk. Hluti af ástæðunni fyrir því er að félagið seldi marga af bestu varnarmönnum félagsins í síðustu tveimur félagsskiptagluggum.

Í janúar fór Marc Guehi, þáverandi fyrirliði Crystal Palace, til Manchester City og í sumar voru Daniel Munox og Maxence Lacroix einnig seldir. Það er því hægt að segja að vörn arnanna sé vængbrotin en aðeins var Axel Disasi keyptur í vörnina.

Samkvæmt Sky Sports var Sage áhyggjufullur yfir því hvort að hann fengi að halda áfram sem þjálfari liðsins eftir niðurlægingu gegn erkifjendunum. Hann bað stuðningsmenn afsökunar en Brighton hefur verið á mikilli siglingu á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×