„Ég elska Obbu“ Bjarki Sigurðsson skrifar 18. október 2026 11:16 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (t.v.) segir ekki satt að samband hennar og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur sé stirt, líkt og Jón Gnarr heldur fram. Vísir/Vilhelm Formaður Viðreisnar segist ætla að taka ummæli Jóns Gnarr um forystuleysi innan flokksins til umhugsunar. Það sé þó ósatt að það andi köldu milli hennar og dómsmálaráðherra. Það sé högg fyrir þingflokkinn að missa Jón.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var í ítarlegu viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi meðal annars brotthvarf Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Jón sagði sig úr þingflokknum á fimmtudag og verður óflokksbundinn þingmaður. Í viðtölum hefur Jón sagt ástæðurnar margar, meðal annars skort á forystu innan þingflokksins, þungt andrúmsloft þar og að hann hafi ekki fengið að koma sínum málum á dagskrá. „Ég veit að hann talaði um forystuleysi, ég ætla bara að hugsa það, en ef það er samt eitthvað sem ég hef ekki áður verið álösuð fyrir í mínu pólitíska lífi er það að vera ákvarðanafælin. Ég hef tekið þær ákvarðanir sem eru ekkert endilega alltaf vinsælastar í heimi en þetta er eitthvað bara sem ég ætla að skoða og hérna, og tala við mitt fólk um,“ segir Þorgerður. Jón formaður hóps sem skoðaði innra starfið Ljóst sé að þjappa þurfi hópnum saman innan Viðreisnar og segir Þorgerður að það verkefni hafi verið í vinnslu áður en Jón kvaddi þingflokkinn. Jón hafi meðal annars verið valinn í að leiða hóp sem átti að fá algjört frelsi til að fara yfir innra starf Viðreisnar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. „Það er auðvitað högg fyrir okkur að missa mann eins og Jón en hann ætlar að styðja ríkisstjórnina áfram. Hann sér stóru myndina, hvað það skiptir máli að halda áfram þessum verkum sem við skuldbindum okkur til þess að gera og við erum bara rétt að byrja og erum bara hressari sem aldrei fyrr,“ segir Þorgerður. Í þætti Spursmála í fyrradag sagði Jón að það andaði köldu milli Þorgerðar og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Það hafi verið hluti af ástæðum þess að hann vildi koma sér úr þingflokknum. Þorbjörg Sigríður neitaði því í viðtali við Vísi í gær og sagði Jón svo síðar að hann væri ekki að segja ósatt. „Hvað þetta er veit ég ekkert, en ég játa að ég hef orðið var við þetta,“ sagði Jón við Rúv í gær. „Ég elska Obbu. Erum við alltaf sammála um allar áherslur? Ekkert endilega en ég styð hana eindregið. Ég held þetta sé besti dómsmálaráðherra sem við höfum haft, ekki bara í áraraðir heldur áratugi,“ segir Þorgerður.
Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sprengidagur Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira