Innlent

Lést eftir al­var­legt slys á Gæsavatnaleið

Agnar Már Másson skrifar
Lögreglan greinir frá þessu.
Lögreglan greinir frá þessu.

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gær að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra eftir að tilkynning hafði borist um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið.

Lögreglan greinir frá því í færslu á Facebook að slysið hafi átt sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks á jeppum var að losa fastan jeppa.

„Ljóst var strax í upphafi að um alvarlegt slys var að ræða og voru viðbragðsaðilar sendir á hæsta forgangi á vettvang,“ segir í tilkynningunni.

„Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi.“

Björgunarsveitir hafi flutt samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins hafi veitt því áfallahjálp.

Lögregla segir slysið vera til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra en rannsóknarnefnd samgönguslysa hafi einnig verið upplýst um slysið.

Lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.

Lögreglumenn, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk frá björgunarsveitunum Þingey, Stefáni í Mývatnssveit, Hjálparsveit skáta í Aðaldal, Dalbjörg og Súlum á Akureyri fóru á vettvang slyssins í gær, að því er lögreglan greindi frá fyrr í dag.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×