Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar 16. október 2026 08:17 “Fest skal í lög að ekki verði borað eftir jarðefnaeldsneyti á íslensku yfirráðasvæði” Þetta er lokasetningin í stefnuyfirlýsingu Samfylkingarinnar um loftslagsvá. Stefna flokks forsætisráðherra og ráðherra umhverfismála gæti því ekki verið skýrari þegar kemur að óraunhæfum hugmyndum lukkuriddara og meiðreiðarsveina þeirra um olíuborun á Drekasvæðinu sem hafa dúkkað upp á yfirborðið reglulega undanfarin áratug eða svo. Hugmyndir um rannsóknir á olíuborun og olíuleit hafa ítrekað ratað inn í þingsali á þessu kjörtímabili. Formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, leiðir þá umræðu á Alþingi og hefur varaformaður Sjálfstæðisflokksins elt hann í þessu eins og öðru um víðan völl og í laugar. Sigmundur hefur í tvígang lagt fram þingsályktunartillögu um leit að olíu og gasi þar sem sérstaklega er tekið fyrir borun og leit á Drekasvæðinu, fyrst mælti hann fyrir þingsályktunartillögunni 16. september 2025 og svo aftur 17. september síðastliðin. Í ár bætti Sigmundur um betur og spurði forsætisráðherra um málið í óundirbúnum fyrirspurnum þann 13. október, þar sem hann spurði meðal annars hvort íslensk stjórnvöld muni standa í vegi fyrir því ef menn sýna því áhuga á að ráðast í; “...alvörurannsóknir og vonandi síðan hugsanlega vinnslu á olíu og gasi ?” Þessi ríkisstjórn er ekki að leggja bann við olíuleit og hyggst ekki gera Svör Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra, vekja sannarlega athygli og eru umhverfissinnum mikil vonbrigði. Hún svaraði því til að umhverfisráðherra í síðustu ríkisstjórn hafi lagt fram frumvarp í þinginu um bann við olíuleit. “Það hefur þessi ríkisstjórn ekki gert og hyggst ekki gera” og bætti Kristrún við síðar ; “Þessi ríkisstjórn er ekki að leggja bann við olíuleit. Ef fólk hefur áhuga á að fara lengra með þetta mál þá þarf það bara að bera sig eftir björginni gagnvart stjórnvöldum hér. Það er bara í góðu lagi mín vegna.” Það er meiriháttar dapurlegt að sjá að forsætisráðherra ríkisstjórnar tala með þessum hætti árið 2026 þegar loftlagsváin er alltumlykjandi og ríki heims verða að fara í afdráttalausari aðgerðir gegn loftlagsbreytingum. Að auki er sorglegt að leiðtogi ríkisstjórnar tali þvert gegn samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að hún ætli sér að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum m.a. með markvissum loftslagsaðgerðum svo Ísland nái lögbundnu kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 og verði áfram í fremstu röð í baráttu gegn hnattrænni hlýnun. Hvernig má það þá vera að forsætisráðherra hafi ekki og ætli sér ekki að banna olíuleit við Ísland ? Veit ráðherrann ekki betur ? Kannski gaf umhverfis- orku og loftlagsráðherra tóninn þegar hann breytti snarlega um kúrs fyrir ári eftir að hafa talað gegn olíuleit á Drekasvæðinu í mars, en aðeins fimm mánuðum síðar sagði hann í viðtali við Morgunblaðið ekki sjá neina ástæðu til að banna olíuleit á Drekasvæðinu, þó vissulega hafi hann sagt það óábyrgt af ríkinu að ýta sérstaklea undir olíuleit. Ekki vegna áhættunnar fyrir umhverfi og lífríki, heldur hvernig leitin endaði síðast… Ný verkefni tengd jarðefnaeldsneyti ósamrýmanleg Parísarsamkomulagi Í umsögn sinni við þingmál Sigmundar um leit að olíu og gasi á Drekasvæðinu, bendir Hafrannsóknarstofnun réttilega á að allur bruni á jarðefnaeldsneyti leiði til aukningar á koldíoxíði í andrúmslofti jarðar og slíkur bruni sé veigamesta orsök hraðra loftslagsbreytinga og súrnunar sjávar. Nauðsynlegt sé að draga úr þessari losun á heimsvísu og horfa þurfi til þessa afleiðinga þegar ákvarðanir eru teknar um að fara í stórskala aðgerðir á borð við vinnslu á olíu og gasi sem leiða til aukinnar losunar koldíoxíðs út í andrúmsloft jarðar. Lífríkið á hafsvæðinu norðan Íslands er aðlagað köldum sjó norðurslóða og sé almennt talið viðkvæmara fyrir raski en lífríki á hlýrri og breytilegri hafsvæðum. Þetta eigi vissulega við um lífríkið á Drekasvæðinu. Í sama streng tók Landvernd og Ungir umhverfissinnar í sinni umsögn og bentu á að Ísland er aðili að Parísarsamkomulaginu og hefur því skuldbundið sig til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, með það að markmiði að halda hlýnun jarðar innan við 2°C og eins nálægt 1,5°C og mögulegt er. Samkvæmt IPCC, milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, þurfi meirihluti jarðefnaeldsneyti heimsins að haldast óunninn neðanjarðar til að það markmið náist. Bæði aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðlega orkustofnunin (IEA) hafi tekið skýrt fram að fjárfestingar í nýjum verkefnum tengdum jarðefnaeldsneyti séu ósamrýmanleg markmiðum um 1,5°C hlýnun. Opnar dyr fyrir olíuleit eru í andstöðu við markmið í loftslagsmálum Það er því Ijóst að ef við höldum dyrum opnum fyrir olíuleit og -vinnslu, eins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru greinilega að gera, er það í beinni andstöðu við loftslagsmarkmið okkar og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Markmiðið með olíuleit og rannsóknum á olíu og gasi á Drekasvæðinu er gæti ekki verið skýrara; að vinna olíu og gas af svæðinu. Það stangast stórkostlega á við markmið um kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040, sem Alþingi hefur þegar lögfest. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar þurfa því að tala skýrt gegn olíuleit og óraunhæfum könnunarleiðangrum í því skyni á Drekasvæðinu. Annað er óábyrgt. Höfundur er formaður Vinstri grænna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Björk Brynjólfsdóttir Olíuleit á Drekasvæði Mest lesið ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
“
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun