Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Lovísa Arnardóttir skrifar 15. október 2026 09:57 Stofnunin heyrir undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Vísir/Anton Brink Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir. Hlutverk stofnunarinnar verður að reka úrræði fyrir einstaklinga sem dæmdir hafa verið til þess að sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn í samræmi við ákvæði almennra hegningarlaga. Þar á meðal eru einstaklingar sem lokið hafa afplánun en talið er að séu enn hættulegir samfélaginu.
Viljayfirlýsing var undirrituð í nóvember um að ríkinu yrði tryggð lóð fyrir stofnunina í Reykjavík. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að miðstöðin eigi að taka formlega til starfa 1. apríl 2027 þegar lög um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn taka jafnframt gildi. Miðað er við að skipað verði í embættið eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 1. febrúar 2027. Verkefni starfsfólks miðstöðvarinnar verða til dæmis að sjá um framkvæmd öryggisráðstafana og að taka við dómum og úrskurðum um öryggisráðstafanir til framkvæmdar og skráningar frá ríkissaksóknara. Þá á miðstöðin að hafa eftirlit og umsjón með öryggisgæslustöðum sem starfa á hennar vegum, sem og umsjón með einstaklingum sem gert er að sæta vægari öryggisráðstöfunum. Hún fer jafnframt með eftirlit með öryggisgæslustöðum sem reknir eru á grundvelli samnings við sveitarfélög og einkaaðila. Í tilkynningu segir að starfsfólk miðstöðvarinnar eigi jafnframt að veita ráðgjöf og faglegan stuðning öllum þeim aðilum sem veita skjólstæðingum þjónustu samhliða öryggisráðstöfunum. Þá eiga þau einnig að sjá um að veita viðeigandi hagaðilum jafnframt fræðslu um málefni stofnunarinnar og skjólstæðinga hennar. Í tilkynningu segir um helstu verkefni og ábyrgð forstjóra: Forstjóri undirbýr starfsemi stofnunarinnar, meðal annars með því að ganga frá ráðningu starfsfólks og gera ráðstafanir til þess að gildandi samningar um öryggisráðstafanir færist yfir til miðstöðvarinnar við gildistöku laganna í apríl nk. Forstjóri vinnur með hlutaðeigandi ráðuneytum að húsnæðismálum nýrrar stofnunar. Forstjóri kemur að öðrum verkefnum á undirbúnings- og innleiðingartímanum, svo sem gerð stjórnvaldsfyrirmæla og samhæfingu gagnvart þjónustukerfum. Forstjóri veitir miðstöðinni forstöðu og ber ábyrgð á daglegum rekstri hennar. Hann sér til þess að starfsemi miðstöðvarinnar sé í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli, reglugerðir og erindisbréf sem ráðherra setur. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem hefur sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum uppbyggingu og þróun nýrrar stofnunar, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri framkvæmd öryggisráðstafana. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir: Háskólapróf sem nýtist í starfi. Þekkingu og reynslu sem nýtist á starfssviði miðstöðvarinnar Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu. Farsælli reynslu af stjórnun, rekstri og stefnumörkun. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum. Reynslu og hæfni til að koma fram opinberlega og miðla upplýsingum. Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur. Hafa áhyggjur af einstaklingum á leið úr afplánun Nokkur mál hafa komið upp síðustu misseri þar sem íbúar eða sérfræðingar innan til dæmis fangelsismálakerfisins lýsa áhyggjum af einstaklingum sem eru á leið úr fangelsisvistun en stafar enn ógn af og einstaklingum sem þurfa aðstoð vegna geðrænna vandamála.
Félagsmál Fangelsismál Geðheilbrigði Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Hlaut dóm fyrir að ráðast á móðurina tveimur árum fyrir andlátið Karlmaður á fertugsaldri sem er í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans hlaut dóm fyrir tveimur árum vegna ofbeldis í garð móðurinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fór hann úr fangelsi í haust, en þá hafði hann lokið afplánun. Hann hafði setið inni í fangelsi allan afplánunartímann. 25. október 2024 12:57 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Fleiri fréttir „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Sjá meira
Hlaut dóm fyrir að ráðast á móðurina tveimur árum fyrir andlátið Karlmaður á fertugsaldri sem er í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans hlaut dóm fyrir tveimur árum vegna ofbeldis í garð móðurinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fór hann úr fangelsi í haust, en þá hafði hann lokið afplánun. Hann hafði setið inni í fangelsi allan afplánunartímann. 25. október 2024 12:57