Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2026 11:32 Íranir eru sagðir hafa sent óvopnaða menn á smáum ómerktum bátum til að finna skotmörk á Hormússundi. Bandaríkjamenn sökktu einum slíkum báti í síðustu viku. AP/Razieh Poudat, ISNA Íranir hafa fjölgað árásum sínum á olíuflutningaskip á Hormússundi og gera árásir á stærra svæði. Þetta hefur skilað nokkrum árangri í vel heppnuðum árásum en markmið Írana er að halda eldsneytisverði háu og reyna þannig að hafa áhrif á þingkosningar í Bandaríkjunum í næsta mánuði.
Undanfarna daga hafa þó nokkur skip orðið fyrir eldflaugum, tundurduflum eða drónum á eða við Hormússund, samkvæmt UKMTO, sem er upplýsingaveita og eftirlitsstofnun á vegum breska sjóhersins. Eitt skipanna sökk undan ströndum Óman. Þá segja Íranir að annað skip, flutningsakip með um 2.500 gáma, hafi sokkið eftir að því hafi verið siglt á tundurdufl á Hormússundi. Þetta hefur ekki verið staðfest enn. Nýjasta tilkynningin, þegar þetta er skrifað, barst UKMTO í morgun. Þá mun skip hafa orðið fyrir árás en skemmst lítið og var hægt að sigla því áfram. UKMTO WARNING 173-26 Click here to view the full warning⤵️ https://t.co/6ZtQ9a8Ohb #MaritimeSecurity #MarSec https://t.co/c01c0CWB2B— UKMTO Operations Centre (@UK_MTO) October 14, 2026 Á undanförnum vikum hefur tekist að auka flæði olíu og olíuafurða um Hormússund talsvert. Því hefur þó fylgt töluverð áhætta og hafa flutningarnir verið mun kostnaðarsamari en þeir voru fyrir stríð, þegar um fimmtungur olíu og jarðgass heimsins fór um sundið. Bandaríkjamenn hafa verið að fylgja stórum skipum um sundið, Ómanmegin, og hefur olíu verið dælt af þeim um borð í önnur skip í kjölfarið. Á sama tíma hafa Bandaríkjamenn haldið Íran í herkví og hefur skipum ekki verið hleypt þaðan eða þangað. Með því vilja Bandaríkjamenn þvinga klerkastjórnina í Íran til að gefa eftir í viðræðum milli ríkjanna. Tveir íranskir embættismenn sem ku vera háttsettir sögðu í samtali við Reuters að ákveðið hefði verið að breyta um stefnu og leggja meiri áherslu á árásir á skip. Því hvernig árásirnar væru gerðar hefði verið breytt og þeim einnig fjölgað. Markmiðið væri að koma í veg fyrir að eldsneytisverð lækkaði aftur. Þetta var staðfest af bandarískum embættismanni í varnarmálaráðuneytinu þar. Hann sagði að Bandaríkjamenn hefðu grandað flestum ratsjám byltingarvarðarins en þá hefðu Íranir farið að senda óvopnaða menn á smáum bátum út á Hormússund til að finna möguleg skotmörk fyrir dróna og eldflaugar. Bandaríkjamenn komust á snoðir um hvað Íranir væru að gera og grönduðu einum slíkum bát í síðustu viku, eftir að hafa sagt mönnunum um borð að fara frá borði. Nú segja áðurnefndir heimildarmenn Reuters í Íran að aftur sé verið að gefa í þegar kemur að árásum á skip á Hormússundi. Engum skipum verði siglt þar um innan skamms. Fjölmiðlar vestanhafs hafa sagt frá því að Donald Trump hafi íhugað nýjar árásir á Íran. Embættismenn innan varnarmálaráðuneytisins eru sagðir hafa lagt fram áætlanir um slíkar árásir en Trump vill bíða þar til eftir kosningarnar í næsta mánuði. Stríðið gegn Íran er mjög svo óvinsælt í Bandaríkjunum.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Hernaður Bensín og olía Donald Trump Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Sjá meira