Íslenski boltinn

Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik

Sindri Sverrisson skrifar
Rúnar Páll Sigmundsson kannast vel við sig í Garðabænum.
Rúnar Páll Sigmundsson kannast vel við sig í Garðabænum. Vísir/Baldur

Rúnar Páll Sigmundsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta á nýjan leik. Hann gerði liðið að Íslandsmeistara og bikarmeistara í fyrsta sinn síðast þegar hann stýrði liðinu.

Rúnar Páll snýr aftur í Garðabæinn eftir að hafa síðast stýrt Gróttu og þar áður Fylki.

Hann var þjálfari Stjörnunnar á árunum 2014-2021 og tókst þá á fyrsta tímabilinu að gera liðið að Íslandsmeistara og það án þess að tapa einum einasta leik auk þess að leiða liðið í eftirminnilegt Evrópuævintýri sem lauk með leik við stórlið Inter á San Siro.

„Rúnar Páll á stóran þátt í nokkrum af stoltustu stundum í sögu félagsins. Nú snýr hann aftur til uppeldisfélags síns og við horfum með tilhlökkun og metnaði til næsta kafla.

Innan knattspyrnudeildarinnar er mikill metnaður fyrir því að koma Stjörnunni aftur í fremstu röð íslenskrar knattspyrnu og berjast um titla. Jafnframt viljum við endurvekja þá einstöku stemningu sem hefur áður sameinað bæinn og efla samstöðuna sem býr í samfélaginu okkar í Garðabæ.

Við vitum hvað er hægt þegar leikmenn, þjálfarar, starfsfólk og stuðningsfólk leggjast á eitt. Við höfum upplifað það saman og við ætlum okkur að skapa fleiri slíkar stundir,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×