Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar 13. október 2026 14:03 Síðastliðin ár og áratugi hefur orðið bylting í lyfjaþróun sem leitt hefur af sér fjölda nýrra meðferðarúrræða. Líftæknilyf hafa gjörbreytt lífsgæðum fólks með langvinna sjúkdóma sem áður höfðu veruleg áhrif á daglegar athafnir. Rannsóknum á sviði krabbameinslyfja fleygir fram og nýjar einstaklingsmiðaðri og markvissari meðferðir gera sjúklingum kleift að lifa lengur og búa við betri lífsgæði. Bóluefni hafa dregið verulega úr eða nánast útrýmt ýmsum sjúkdómum og eru í dag ein mikilvægasta stoð lýðheilsu. Eðlilegt er að almenningur velti fyrir sér kostnaði lyfja, enda geta þau, eftir áratugalangt rannsóknar- og þróunarferli, verið kostnaðarsöm. Fjármunir heilbrigðiskerfisins eru takmarkaðir og lyf eru einn þeirra útgjaldaliða sem stjórnvöld þurfa að forgangsraða. Markmiðið ætti því ekki eingöngu að vera að halda lyfjakostnaði niðri, heldur að tryggja að fjárfesting í lyfjameðferð skili sem mestum heilsufarslegum ávinningi. Erfið veikindi einstaklings geta haft margvísleg áhrif á aðstandendur. Þessi áhrif lýsa sér meðal annars í röskun á daglegu lífi, svo sem fjarvistum eða brotthvarfi af vinnumarkaði, minni framleiðni og auknum tíma og ferðakostnaði sem fellur til við að sækja heilbrigðisþjónustu. Þyngri tilfelli geta leitt til örorku eða ótímabærra dauðsfalla sem aukið getur enn frekar álag og áhrif á aðstandendur. Þetta kallast óbeinn kostnaður og hann getur orðið margfalt hærri en beinn kostnaður lyfjameðferðar. Þjóðin er að eldast, langvinnum sjúkdómum fjölgar og þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu fer vaxandi. Á sama tíma skapa fyrrnefndar framfarir í læknavísindum ný tækifæri til að fyrirbyggja sjúkdóma, bæta meðferð og auka lífsgæði. Þessi þróun kallar á langtímahugsun og skýra forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Ný lyf þarf að meta af kostgæfni og tryggja ábyrga nýtingu opinbers fjár. Við mat á kostnaði þarf jafnframt að horfa til þess ávinnings sem árangursrík meðferð getur skilað til lengri tíma. Bætt heilsa og aukin lífsgæði eru verðmæti í sjálfu sér, en ávinningurinn getur einnig falist í aukinni starfsgetu og þátttöku í samfélaginu og minni þörf fyrir heilbrigðisþjónustu síðar meir. Umræðan um lyfjaútgjöld ætti því ekki eingöngu að snúast um hvað lyf kosta, heldur einnig um hvaða verðmæti þau skapa. Árangursrík lyfjameðferð getur verið fjárfesting í fólki, heilsu þess og þátttöku í samfélaginu. Heilbrigð þjóð er ein mikilvægasta auðlind samfélagsins. Höfum það að leiðarljósi og fjárfestum í fólki og framtíðinni. Höfundur er lyfjafræðingur og stjórnarkona í Frumtökum, samtökum framleiðenda Frumlyfja. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lyf Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Sjá meira
Síðastliðin ár og áratugi hefur orðið bylting í lyfjaþróun sem leitt hefur af sér fjölda nýrra meðferðarúrræða. Líftæknilyf hafa gjörbreytt lífsgæðum fólks með langvinna sjúkdóma sem áður höfðu veruleg áhrif á daglegar athafnir. Rannsóknum á sviði krabbameinslyfja fleygir fram og nýjar einstaklingsmiðaðri og markvissari meðferðir gera sjúklingum kleift að lifa lengur og búa við betri lífsgæði. Bóluefni hafa dregið verulega úr eða nánast útrýmt ýmsum sjúkdómum og eru í dag ein mikilvægasta stoð lýðheilsu. Eðlilegt er að almenningur velti fyrir sér kostnaði lyfja, enda geta þau, eftir áratugalangt rannsóknar- og þróunarferli, verið kostnaðarsöm. Fjármunir heilbrigðiskerfisins eru takmarkaðir og lyf eru einn þeirra útgjaldaliða sem stjórnvöld þurfa að forgangsraða. Markmiðið ætti því ekki eingöngu að vera að halda lyfjakostnaði niðri, heldur að tryggja að fjárfesting í lyfjameðferð skili sem mestum heilsufarslegum ávinningi. Erfið veikindi einstaklings geta haft margvísleg áhrif á aðstandendur. Þessi áhrif lýsa sér meðal annars í röskun á daglegu lífi, svo sem fjarvistum eða brotthvarfi af vinnumarkaði, minni framleiðni og auknum tíma og ferðakostnaði sem fellur til við að sækja heilbrigðisþjónustu. Þyngri tilfelli geta leitt til örorku eða ótímabærra dauðsfalla sem aukið getur enn frekar álag og áhrif á aðstandendur. Þetta kallast óbeinn kostnaður og hann getur orðið margfalt hærri en beinn kostnaður lyfjameðferðar. Þjóðin er að eldast, langvinnum sjúkdómum fjölgar og þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu fer vaxandi. Á sama tíma skapa fyrrnefndar framfarir í læknavísindum ný tækifæri til að fyrirbyggja sjúkdóma, bæta meðferð og auka lífsgæði. Þessi þróun kallar á langtímahugsun og skýra forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Ný lyf þarf að meta af kostgæfni og tryggja ábyrga nýtingu opinbers fjár. Við mat á kostnaði þarf jafnframt að horfa til þess ávinnings sem árangursrík meðferð getur skilað til lengri tíma. Bætt heilsa og aukin lífsgæði eru verðmæti í sjálfu sér, en ávinningurinn getur einnig falist í aukinni starfsgetu og þátttöku í samfélaginu og minni þörf fyrir heilbrigðisþjónustu síðar meir. Umræðan um lyfjaútgjöld ætti því ekki eingöngu að snúast um hvað lyf kosta, heldur einnig um hvaða verðmæti þau skapa. Árangursrík lyfjameðferð getur verið fjárfesting í fólki, heilsu þess og þátttöku í samfélaginu. Heilbrigð þjóð er ein mikilvægasta auðlind samfélagsins. Höfum það að leiðarljósi og fjárfestum í fólki og framtíðinni. Höfundur er lyfjafræðingur og stjórnarkona í Frumtökum, samtökum framleiðenda Frumlyfja.
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun