„Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 12. október 2026 23:12 Þorleifi Þorleifssyni sárnaði að heyra ummæli Egils Trausta Ómarssonar. Samsett/Vísir/@egilltrausti Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi í bakgarðshlaupi, kveðst afar sár yfir umræðu þess efnis að honum sé svo annt um Íslandsmet sitt að hann myndi viljandi hætta keppni fyrr en ella til þess að verja metið sitt.
Þorleifur er einn af fimmtán fulltrúum Íslands í landsliðinu í bakgarðshlaupi sem hefur keppni á laugardaginn og þykir líklegur til að hlaupa lengst Íslendinganna. Hann setti Íslandsmet sitt í Elliðaárdalnum árið 2024 þegar hann hljóp 62 hringi (á jafnmörgum klukkutímum) eða samtals 415,4 kílómetra. Íslenski hópurinn er öflugur og ljóst að met Þorleifs gæti verið í hættu en til þess þurfa að minnsta kosti tveir hlauparar að fara 62 hringi því um leið og aðeins einn hlaupari er eftir í bakgarðshlaupi er keppni hætt. „Hann er ekki að fara að leyfa neinum öðrum að taka þetta Íslandsmet“ Í umræðuþætti á Vísi um landsliðakeppnina hrósaði hlaupakappinn Egill Trausti Ómarsson Þorleifi í hástert og sagði hann besta bakgarðshlaupara landsins. Í kjölfarið fylgdu hins vegar ummæli sem fóru afar illa í Þorleif: „Ef hann sér fram á það að hann er ekki að fara að ná Íslandsmetinu og hann er einn eftir með einhverjum öðrum… hann hættir. Hann er ekki að fara að leyfa neinum öðrum að taka þetta Íslandsmet,“ sagði Egill en ummælin má sjá hér að neðan, eftir 36:15 mínútur. „Annaðhvort hættir hann snemma eða vinnur þetta,“ bætti Egill Trausti við en Garpur I Elísabetarson sem stýrði þættinum var ekki alveg sammála: „Ég held að það verði ekki til aðstæður þar sem hann og einhver einn annar verða eftir og að hann haldi eitthvað annað en að hann muni vinna þetta. Ef hann nær þangað þá sleppir hann því ekkert. Hann hefur alveg tapað á móti Mari [Järsk sem er einnig í landsliðinu] og vinnur ekkert allar keppnir en ég held að það verði mjög forvitnilegt að sjá hvernig hann bregst við. Hann allavega stefnir á sigur,“ sagði Garpur. Þorleifur Þorleifsson tjáði sig um málið í Instagram Story.Skjáskot/Instagram „Ef ég get aðstoðað mun ég alltaf gera það“ Þorleifur tjáði sig svo sjálfur um málið í færslu á Instagram í kvöld og skrifaði: „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta. Að gefa það í skyn að ég myndi frekar hætta en að eiga á hættu að missa Íslandsmetið.“ Þorleifur benti jafnframt á að ef hann stæði einn eftir með öðrum hlaupara þá væri hann spenntur fyrir því að bæta sinn besta árangur þó að það gæti þýtt að meðhlaupari hans næði af honum Íslandsmetinu. „Hvernig væri að hugsa að ef ég enda sem „assist“ og missi metið, þá er ég að öllum líkindum sjálfur að bæta mitt PB og ég er mjög til í það! Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta met verður slegið. Kannski um helgina, kannski eftir nokkur ár. Ef ég get aðstoðað viðkomandi við að ná því, þá mun ég alltaf gera það. Alltaf þegar einhver hefur beðið mig um ráð hef ég veitt aðstoð og reynt að hjálpa. Þannig virkar þetta sport,“ skrifar Þorleifur. Landsliðakeppnin í bakgarðshlaupi hefst eins og fyrr segir á laugardaginn og verður í beinni útsendingu á Vísi.
Bakgarðshlaup Hlaup Tengdar fréttir Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Sölvi Snær Egilsson er einn hlauparanna. 12. október 2026 09:00 Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Hekla Hannesdóttir er ein þeirra. 11. október 2026 09:02 Bakgarðsáskorunin: Íslandsmeistarinn einbeittur Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Þorleifur Þorleifsson er einn þeirra. 10. október 2026 09:01 Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Tómas Þór Jacobsen er einn þeirra. 9. október 2026 09:02 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Sjá meira
Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Sölvi Snær Egilsson er einn hlauparanna. 12. október 2026 09:00
Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Hekla Hannesdóttir er ein þeirra. 11. október 2026 09:02
Bakgarðsáskorunin: Íslandsmeistarinn einbeittur Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Þorleifur Þorleifsson er einn þeirra. 10. október 2026 09:01
Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Tómas Þór Jacobsen er einn þeirra. 9. október 2026 09:02