Innlent

Leita enn að einum grunaðra eftir al­var­lega líkams­á­rás

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Atvikið átti sér stað í Reykjanesbæ.
Atvikið átti sér stað í Reykjanesbæ. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á Suðurnesjum leitar enn að einum sem grunaður er um að hafa tekið þátt í alvarlegri líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. Fjórir hafa þegar verið yfirheyrðir.

Þetta staðfestir Stefán Sveinsson, aðstoðyfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurnesjum en Rúv greindi fyrst frá. Fimm eru grunaðir um aðild að líkamsárásinni, fjórir karlmenn og ein kona. Þau eru á þrítugs-, fertugs- og fimmtugsaldri og öll Íslendingar.

Einn þeirra var yfirheyrður strax eftir árásina og var lýst eftir hinum fjórum. Lögreglan hefur haft uppi á þremur þeirra og yfirheyrt en leitar enn að hinum fjórða, sem er einn karlmannanna. Enginn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Einhver tengsl eru á milli brotaþola og þeirra fimm sem grunuð eru um árásina.

Líkamsárásin átti sér stað fyrir utan heimahús og inni í Reykjanesbæ. Stefán segir að atburðarásin liggi nokkurn veginn fyrir en gat ekki veitt nánari upplýsingar. Brotaþoli var fluttur á sjúkrahús en hefur verið útskrifaður. 

Samkvæmt tilkynningu sem lögreglan birti í síðustu viku var ráðist í húsleit á fleiri en einum stað. Stefán segir að lögreglan hafi lagt hald á vopn en miðað við alvarleika líkamsárásarinnar telur lögreglan að árásaraðilar hafi beitt barefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×