Loðnumælingar töluvert undir væntingum Lovísa Arnardóttir skrifar 12. október 2026 15:06 Upphafsráðgjöf samkvæmt þeim var 358.044 tonn sem nýja ráðgjöfin kemur í staðinn fyrir. Vísir/Sigurjón Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er upp á ríflega 105 þúsund tonn. Í tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun kemur fram að ráðgjöfin byggi á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðastliðnum sem reyndust töluvert undir væntingum.
Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin. Rannsóknaskipin Tarajoq og Árni Friðriksson voru við loðnumælingar á tímabilinu 28. ágúst til 26. september við austurströnd Grænlands og norður af Íslandi. „Enda þótt tækist að fylgja áætlun á mestum hluta rannsóknasvæðisins og yfirferð þar talin fullnægjandi, náðist ekki að fara yfir nyrsta hluta svæðisins. Árni Friðriksson lenti í miklum og tíðum óviðrum í leiðangrinum og sérstaklega nyrst á svæðinu. Afleiðingarnar urðu að nyrst þurfti að fara í grófari yfirferð til að ná mælingu milli óveðra og hafís hamlaði að lokum frekari mælingum. Á suðurhluta svæðisins var nánast eingöngu ungloðna en fullorðna loðnan var norðar og allt norður að 71°N þar sem Árni Friðriksson þurfti frá að hverfa vegna óveðurs og hafíss,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknarstofnunar um mælingarnar. Leiðarlínur Tarajoq og Árna Friðrikssonar haustið 2026 (gráar línur), þéttleiki loðnu (bleikar línur þvert á leiðarlínur) og útbreiðsla hafís 23. september (litaskali).Hafrannsóknarstofnun Allt annað en upphafsráðgjöfin Niðurstöður mælinganna sýna svo að stærð veiðistofnsins, sem verður uppistaða veiðanna á komandi vertíð, mældist tæp 560 þúsund tonn. Að teknu tilliti til samþykktrar aflareglu og metins afráns gefi sú mæling ráðgjöf upp á 105.773 tonn samkvæmt tilkynningu en þar segir einnig að horfa verði til þess að aflareglan kveði á um að ráðgjöf byggð á haustmælingu á veiðistofni sé 2/3 af útreiknuðu aflamarki, sem var 158.660 tonn, og gefi fyrirheit um hvað þessi mæling gefur í afla. Í tilkynningu er tekið fram að þessi mæling á stærð veiðistofnsins sé töluvert undir væntingum byggðum á ungloðnumælingum haustið 2025. Upphafsráðgjöf samkvæmt þeim var 358.044 tonn sem nýja ráðgjöfin kemur í staðinn fyrir. „Munurinn á niðurstöðum þessara mælinga er talinn, allavega að hluta til, stafa af því að ekki náðist yfir allt útbreiðslusvæði loðnunnar í nýafstöðnum leiðangri nyrst og því sé um að ræða vanmat á stærð veiðistofnsins,“ segir í tilkynningunni. Ekki tekin ákvörðun um lokamælingu Þar segir einnig að niðurstöður mælinga á magni ungloðnu (ókynþroska) hafi verið upp á 65,9 milljarða einstaklinga og upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2027/28 verði því væntanlega 83.283 tonn samkvæmt aflareglu. Að lokum segir að lokaráðgjöf fyrir yfirstandandi vertíð, sem komi þá í stað ráðgjafar upp á 105 þúsund tonn, verði gefin að loknum vetrarmælingum á nýju ári. Ekki hafa verið teknar lokaákvarðanir samkvæmt tilkynningu um fyrirkomulag þeirra mælinga, en niðurstöður síðustu mælinga muni hafa áhrif þar á.
Sjávarútvegur Hafið Loðnuveiðar Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira