„Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 11. október 2026 12:00 Vilhjálmur Birgisson hefur áhyggjur af stöðu ASÍ. Vísir/Sigurjón Formaður Starfsgreinasambandsins segist hafa áhyggjur af stöðunni innan Alþýðusambands Íslands en ársþing sambandsins hefst í næstu viku. Vilhjálmur Birgisson var gestur á Sprengisandi í morgun þar sem hann fór yfir atburðarásina í vikunni þegar kjarasamningar voru framlengdir.
Bæði Vilhjálmur og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gagnrýndu framgöngu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, harðlega og kallaði Vilhjálmur atburðarásina leikrit. Hana hafi þó þurft að útskýra fyrir félagsmönnum en hún hafi ekki þýtt betri niðurstöðu fyrir VR. „Ég meira að segja fullyrði það að þetta er verri niðurstaða því að þetta er niðurstaða varðandi forsenduákvæðið. Það mun sko að mínum dómi bara ekki virkjast, þau munu ekki fá styttingu.“ Þá segir Vilhjálmur að forsætisráðherra ekki sagt allan sannleikann því búið hafi verið að kynna ákvæði um vaxtabótaauka, sem formaður VR hefur fullyrt að hafi átt eftir að útfæra þegar Breiðfylkingin skrifaði undir framlengingu samninga. „Auðvitað er það alltaf þannig og ég skil alveg forsætisráðherra og ég skil líka Samtök atvinnulífsins og annað þegar að forystumenn í verkalýðshreyfingunni eru kannski búnir að mála sig dálítið út í horn með hástemmdum yfirlýsingum þá þarf oft einhvern veginn að hjálpa fólki út úr þeim ógöngum sem það er komið í og ég held að það hafi verið gert þarna og ég held að það hafi verið gert bara nokkuð snyrtilega.“ Fertugasta og sjöunda þing Alþýðusambandsins verður sett í vikunni en formaður Eflingar skrifaði pistil á Facebook að hún teldi að formaður VR ætlaði að sölsa undir sig sambandið. „Hvernig verður andrúmsloftið þar? Klofnar sambandið? Ég hef áhyggjur af stöðunni. Ég ætla bara að segja það alveg nákvæmlega eins og er. Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu sem er mjög mikilvægt.“
Kjaramál Stéttarfélög ASÍ Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira