Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar 8. október 2026 20:01 „Eyddu ekki meiri tíma í að deila um hvernig góður maður eigi að vera. Vertu hann.” -Markús Árelíus Inngangur Síðustu mánuðir hafa verið vægast sagt áhugaverðir í mínu lífi. Einn daginn er ég venjulegur verkamaður í skóla með aukavinnu í dyravörslu, og þann næsta er ég einhvern veginn orðinn málsvari íslensku þjóðarinnar í einni helstu utanríkisdeilu nútímans, stríði Ísraels á Gaza. Þetta hrindir allt saman af stað atburðarás sem meðal annars gefur mér það tækifæri að taka þátt í verkefni xNei hreyfingarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB-aðildarviðræður, og farvegur minn inn á völl stjórnmálanna myndast. Um mig Ég hef alltaf pælt mikið í pólitík. Ég ólst upp í hruninu, og sem barn tók ég eftir hvernig kreppan setti svip á fréttir, húmor, og maður varð vitni að gjörbreyttu stjórnarfari. Ég ætla ekki að láta eins og ég hafi getað meðtekið að fullu 7 ára þegar markaðsveldishugsjón góðærisins vék fyrir sósíaldemókratískum björgunarhring á kostnað skattgreiðanda, en frasinn „vanhæf ríkisstjórn” var nú oft sagður af okkur krökkunum í mótmælandaleik í frímínútum í skólanum (annað liðið var svikinn almúginn og hitt löggan að verja Alþingi, eða í þessu tilfelli vegg á íþróttahúsinu), þó við vissum ekki endilega hvað gerði hana svona vanhæfa. Sem táningur var ég farinn að hugsa mikið um hvar ég stæði í mínum skoðunum á heimsmálum og ég rökræddi við aðra unga tuðgjarna í kring. Veganismi sem ég og margir aðrir vorum nýfarnir að aðhyllast og Trump/Clinton baráttan náðu reglulega að kynda undir samræður. Nokkrum árum seinna kom Covid og ég og jafnaldrar eyddum restinni af árunum fyrir tvítugt í skóla gegnum fjarfundi, skert félagslíf, annan stóran skell á hagkerfið og það sem sumir myndu kalla ofstækisvald. Í dag er ég fullorðinn, og við mér blasir ekki svo fögur sjón. Staðan í dag Ég er af kynslóð sem er að ranka við sér í þeim heimi sem hún á að taka við. Við lesum á milli línanna og sjáum hvað bíður okkar; við skiptum sífellt minna máli í okkar eigin landi, spurningar um hvað verður um lífeyri okkar í sívaxandi verðbólgu víkja fyrir spurningunni um hvort afkynja þurfi íslenskt tungumál, og tvær vinnur á sitthvorn aðila heimilisins duga oft ekki til við að framfleyta því, hvað þá með skóla. Þegar allar hömlur sem settar eru fyrir okkur áður en við getum lifað eðlilegu lífi eru teknar með í reikninginn og við sjáum hverju skal fórna dugar okkur einfaldlega ekki lengur sá þægilegi neólíberalíski níhilismi sem veifað var fyrir framan kynslóðina á undan okkur. Einhvers konar velferðar- og jafnréttisútópía sem við náum á endanum ef við bara flokkum rusl í rétta dalla og fjármögnum réttu hliðina í næsta auðlindastríði („nei, þú skilur ekki, í þetta sinn drepa þeir í alvörunni í góðu!”). Lokaniðurstaðan var nefnilega önnur. Við búum núna í umhverfi þar sem „gildi” samfélagsins eru heldur gegnsæ. Engu er hnikað við og engan skal móðga, því að með nægum dyggðarflöggunum og reglulegum skiptingum á Facebook prófílmyndafilterum yfir í næsta tískumálstað gætir þú verið næsti gestur í ríkisreknum kvöldspjallþætti og fengið hrós og lof vikunnar. Klappaðu þér á bakið, þú átt það skilið! Þetta skapar samfélag sem trúir ekki á neitt, siðferði verður margbreytilegt undir pólitískri rétthugsun og ungt fólk nær engri fótfestu í heilbrigðum raunveruleika lífsins. Hver ákvörðun um að hunsa alvarleika málsins til að rugga ekki bátnum og reyna frekar að halda í „góðvildarstig” bergmálshellisins mun bara bitna á okkur í framtíðinni. Þetta er óréttlát og eigingjörn hegðun. Hvað skal gera? Ég hef aldrei hagrætt gildum mínum eftir pólitískum hentugleika. Mín hvatning til þín, kæri lesandi, er að standa fyrir því sem þú veist að er rétt, sama hver viðbrögð gætu verið. Sannfæring á eigin siðferðislegum gildum er mun dýrmætari en tímabundin félagsleg viðurkenning. Ég er bara einhver meðalgómur, en er afar þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í breytingum, og mun halda áfram að gera mitt besta. Ég brenn fyrir því að framtíð okkar fallega lands verði í öruggum höndum. Það er engin tilviljun að jafnaldrar mínir og yngri séu svona áhugasamir og vel að sér í stöðu mála. Óreiða í stjórnmálum frá barnæsku, óvissa um framtíð okkar, og óheftur, rafrænn aðgangur að upplýsingum hvar og hvenær sem er sem mannkynið hefur aldrei upplifað áður gefur glögga mynd af stöðunni sem ungt fólk er í. Við stöndum á tímamótum. Nú er það undir okkur komið að snúa þessu við, mynda ákvörðun um rétt og rangt, hvað gagnast okkur sem þjóð og sjá til þess að komandi kynslóðir erfi samfélag, menningu og hagkerfi sem leiða þau ekki til glötunar. Til þess þurfum við svo sannarlega að halda rétt á spöðunum. Höfundur er varamaður í stjórn ungliðahreyfingar Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar