Lífið

Alaska og Flóni hætt saman

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Alaska og FLóni eru hætt saman en eru þó góðir vinir.
Alaska og FLóni eru hætt saman en eru þó góðir vinir. Róbert Arnar

Tónlistarstjörnurnar Kolfreyja Sól Bogadóttir og Friðrik Róbertsson, betur þekkt sem Alaska og Flóni, eru hætt saman.  

Þetta herma heimildir fréttastofu en þau eru þó enn góðir vinir. Samband þeirra varð opinbert í apríl á þessu ári og höfðu þau verið vinir í dágóða stund fyrir. 

Kolfreyja Sól er fædd árið 2000, skaust upp á stjörnuhimininn snemma árs 2025 og hefur vakið mikla athygli í tónlistarbransanum. Á stuttum tíma hefur hún sent frá sér mörg vinsæl lög og má þar nefna Stoppa tímann, Týnda kynslóðin og Ljósin kvikna ásamt Aroni Can. Hún gaf nýverið út plötuna 1867 og Flóni óskaði henni til hamingju með meistaraverkið í Instagram-hringrás sinni. 

Flóni er fæddur árið 1998 og hefur verið vinsæll tónlistarmaður hérlendis síðastliðinn áratug. Hann hefur gefið út þrjár breiðskífur og fjölda smella á borð við Leika, Partý og OMG. 


Tengdar fréttir

Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum

Frægðarsól tónlistarkonunnar Kolfreyju Sólar, sem er betur þekkt sem Alaska, hefur sjaldan skinið skærar en nú. Hún var að gefa út plötuna 1867 sem er í senn tilfinningarík og dansvæn og fagnaði útgáfunni með glæsilegum útgáfutónleikum í hráu umhverfi á Korpúlfsstöðum.

Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“

Tónlistarfólkið Kolfreyja Sól Bogadóttir og Friðrik Róbertsson, betur þekkt sem Alaska 1867 og Flóni, eru ekki lengur „bara vinir“ heldur par. Sögusagnir hafa gengið um að þau væru að slá sér upp síðustu mánuði en þau ekki staðfest það fyrr en nú.

„Erum bara vinir“

Tónlistarfólkið Kolfreyja Sól Bogadóttir og Friðrik Róbertsson, betur þekkt sem Alaska1867 og Flóni, eru „bara vinir“ en ekki að stinga saman nefjum eins og hefur komið fram á samfélagsmiðlum og mbl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.