Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar 8. október 2026 07:32 Fyrir réttum mánuði sagði Reykjavíkurborg upp leigusamningum við fjölmarga aðila í skapandi rekstri á þeim forsendum að brunavörnum væri ábótavant í þessum byggingum. Við leigjendur í Listhúsinu í Gufunesi höfum ítrekað bent á þessa vankanta undanfarin þrjú ár og boðist til að ráða bót á þeim málum á eigin kostnað í skiptum fyrir langtíma leigusamning. Það boð stendur enn. Reykjavíkurborg hefur hins vegar ekki svarað þessum umleitunum, en notar nú þessi atriði sem átyllu til að segja upp leigusamningi allra þessara rýma og, í okkar tilfelli, setja húsið í söluferli. Þessi afdrifaríka ákvörðun núverandi borgarstjórnar bitnar vissulega verst á þeim fjölbreytta hópi fólks innan skapandi greina sem nú missa vinnuaðstöðu sína, en hún er í raun birtingarmynd mun alvarlegri vanda sem er nauðsynlegt að horfast í augu við svo samskonar rökvillur endurtaki sig ekki við næstu bókhaldsæfingar meirihlutans. Allt það stjórnmálafólk og embættismenn innan stjórnsýslunnar sem hafa heimsótt Listhúsið í gegnum tíðina hafa heillast af starfseminni þar, og ég trúi því að langflest þeirra sjái samfélagslegt virði þeirra sköpunarkrafta sem þar eru virkjaðir. En það virðist einfaldlega ekki vera til farvegur innan kerfisins til að meta menningarfyrirbæri eins og þessi. Engin dálkur í Excel skjölum stjórnsýslunnar, engar mælistikur yfir öll þau framlög manneskjunnar sem ekki er hægt að setja inn í reiknilíkan. Af samskiptum okkar við Reykjavíkurborg undanfarin ár virðast rætur vandans liggja í stjórnkerfi þar sem menning og listir eiga sér engan málsvara, kerfi þar sem allir ferlar eru sniðnir að rekstri sem hægt er að meta ársfjórðungslega í krónutölum. Tungumálið sem við notum mótar hugsanir okkar, tjáningu, og á endanum ákvarðanir okkar og gjörðir. Ef við ætlum að eiga uppbyggilegt samtal um menningu og listir, grasrót og frumkvöðlastarf, er mikilvægt að við missum umræðuna ekki inn í orðræðu kapítalsins. Og það er fátt grátlegra en þegar listafólk er þvingað til að réttlæta tilvist sína með vísan í krónutölur og landsframleiðslu, það er marg búið að sýna fram á krónutölulegan ávinning skapandi greina fyrir samfélagið. Raunveruleg verðmæti menningar liggja ekki þar, listafólk er alla daga að skapa verðmæti sem ekki er hægt að mæla með þess konar mælitækjum. Ef ég þarf að vita hvað klukkan er þá fer ég ekki og næ í hitamæli. Ef ég þarf að vita hvort ég er með hita kemur reglustika að engu gagni. Þjóð er einfaldlega ekki þjóð án menningar, og það er ekki hægt að mæla gildi þeirrar menningar með vasareikni. Mig grunar að margir hugmyndasmiðir þessa útspils borgarstjórnar séu jafnvel foreldrar, að þau hafi eignast börn. Hvaða ávöxtunarkröfu ætli þau geri til barna sinna? Ætli hún sé mælanleg í krónutölum á ársfjórðungs fresti? Eða liggur mögulega einhver önnur hvöt að baki því að eignast og ala upp börn? Jafnvel einhver vissa um að í því felist verðmæti sem snúið er að benda á með vísan í bankainnistæður eða Excel skjöl? Þetta neyðarlega vanmat á menningu og mannlífi er ekki náttúrulögmál innan stjórnmálastéttarinnar, þótt það sé stundum freistandi að álykta sem svo. Fyrrverandi borgarstjóri Chicago borgar, Richard J. Daley, benti á að “Politicians don't bring people together. Artists do." Einhver skilningur á stóra samhenginu liggur á bakvið þessi orð. Hvernig metum við samfélagslegt gildi þess að sameina fólk? Hvað er mikilvægara en það? Sala á nokkrum fasteignum? Af málflutningi ráðamanna mætti stundum halda að stuðningur við heilbrigt menningarlíf sé gríðarlega kostnaðarsamur fyrir hið opinbera. En við hvaða kringumstæður ætli framsækin listsköpun verði til, og hvað þarf hún til að þroskast? Það hljómar ótrúlega í dag, en einu sinni var offramboð af ókeypis húsnæði fyrir listafólk í Reykjavík. Bílskúrar og kjallarar buðust ungu skapandi fólki útum allan bæ og það var starfandi hljómsveit í öðrum hverjum bílskúr. Upp úr þessum jarðvegi spratt það sem umheimurinn fór síðar að kalla íslensku tónlistarsenuna; Sykurmolarnir og Björk, Jóhann Jóhannsson, Tilraunaeldhúsið, Hildur Guðnadóttir o.s.frv, fólk sem bókstaflega opnaði dyr umheimsins fyrir Íslandi. Þessi sköpunarkraftur hefði aldrei náð að blómstra ef ekki hefði verið fyrir greiðan aðgang listafólks að ódýru húsnæði. Ofangreint tónlistarfólk náði ekki þroska sínum vegna þess hvað íslendingar voru duglegir að kaupa plöturnar þeirra, eða með því að spila fyrir stappfullri Laugardalshöll. Þetta fólk var búið að verja áratug í að rækta list sína og spila fyrir 10-20 manns á öllum þeim aragrúa af litlum tónleikastöðum sem þá þrifust í Reykjavík af sömu ástæðu; lágu leiguverði. En nú er öldin önnur og allt það, og hjólum kapítalsins verður víst ekki snúið rangsælis, eða svo er manni sagt. En ég velti því fyrir mér, hvers konar sköpun ætli eigi sér stað þegar ódýrt húsnæði er ekki lengur í boði og listafólk þarf að taka þátt í árlegu ríkis-happadrætti um ófyrirsjáanlegar styrkveitingar til að sinna starfi sínu? Þegar þessir sömu styrkir fara í að greiða fyrir rándýrar vinnustofur og friðurinn til að skapa er rofinn með skýrslugerðum til hins opinbera þar sem listafólk reynir að réttlæta tilvist sína með því að benda á hvaða vöru það framleiddi fyrir síðasta styrk? Listhúsið Allar umræddar byggingar sem borgin er nú að tæma af sköpunarkrafti voru á mismunandi stigum hrörnunar þegar leigjendur fóru þar inn. Húsnæði sem borgin hefði aldrei getað leigt undir hundaathvarf eða birgðageymslur vegna bágs ástands. Núverandi leigjendur sáu hins vegar tækifæri í þessu ódýra húsnæði og hafa um árabil hlúð að þessum byggingum á eigin kostnað og nýtt þær undir listsköpun og ýmsa frumkvöðlastarfsemi. Við Dagur Kári, kvikmyndaleikstjóri, hófum að leigja rými í gömlu áburðarverksmiðjunni í Gufunesi árið 2010 og hafði húsið þá staðið autt og grotnað niður í áratugi. Helgi Gíslason myndhöggvari hafði skömmu áður komið sér fyrir í einu rými fyrstu hæðarinnar, en að öðru leyti var húsið ókynnt, óeinangrað, rafmagnslaust og hriplekt. Hrár steinkubbur sem hélt hvorki vatni né vindum. Fyrstu fjögur árin eltum við og gerðum við leka sem ávallt fann sér nýja leið, einangruðum og klæddum útveggi, hólfuðum rýmið niður með innveggjum og milligólfum, lögðum rafmagn og hitalagnir. Það tók okkur á endanum 8-10 ár að fullgera vinnuaðstöðuna sem nú samanstendur af hliðrænu (analog) hljóðveri með einstöku safni fágætra hljóðfæra og upptökubúnaðar, myrkraherbergi fyrir ljósmyndavinnu á filmu, og tveimur aðskildum vinnuherbergum sem margir hafa nýtt. Mörgum vitrari mönnum en okkur kann að þykja það óðs manns æði að ráðast í þessa fjárfestingu, bæði í vinnu og fjármunum, og ég lái þeim það ekki. En listamenn eru upp til hópa bjartsýn hjörð, svo við létum glepjast af síendurteknum loforðum Reykjavíkurborgar um langtíma leigusamning, og af orðum eignaskrifstofu um að frumbyggjum hússins yrði aldrei úthýst. Við Dagur Kári höfum nú verið í rúm 16 ár í Gufunesinu, á þeim tíma hefur Listhúsið laðað að sér fleiri aðila í skapandi greinum og nú starfa þar hönnuður, myndlistarfólk, kvikmyndagerðarmenn, tónlistarfólk og frumkvöðlar. Borgarstjórnir hafa hins vegar komið og farið, og loforðin þeirra með þeim. Þessi saga er auðvitað svo gömul að hún er löngu orðin klisjukennd: Listafólk og frumkvöðlar fá að hreiðra um sig í yfirgefnum skemmum og verðlausum húsum í óaðlaðandi hverfum, kveikja þar líf með áralöngu brautryðjendastarfi þar til hverfin fara smám saman að iða af mannlífi. Þá loksins er tekið eftir verðmætunum sem hafa skapast, frumbyggjunum er úthýst og eigendur taka að fiska inn auðinn sem þeir tóku engan þátt í að skapa. Það eru viðurkennd sannindi innan skipulagsfræða að eitt það allra erfiðasta við borgarskipulag er að kveikja líf í nýjum eða dauðum hverfum. Þetta líf er nú þegar til staðar í Gufunesinu, það var kveikt af drifmiklu fólki í skapandi greinum sem tók að sér hálf ónýtar byggingar á ónýttu iðnaðarsvæði og hefur nú byggt þar upp fjölbreytta starfsemi með iðandi mannlífi í kringum ótal viðburði og hátíðir. Verðmæti Gufuness sem íbúðabyggðar voru ekki sköpuð af kjörnum fulltrúum Reykjavíkurborgar, frekar en af byggingaverktökunum sem nú maka krókinn á sölu fasteigna á svæðinu. Það vill engin kaupa íbúð á yfirgefnu iðnaðarsvæði í niðurníðslu. Nýir íbúar Gufuness kaupa íbúðir þar vegna þess að þeir vilja búa við það mannlíf og skapandi umhverfi sem frumbyggjar svæðisins hafa byggt upp undanfarin 15-20 ár. Frumkvöðlar sem Reykjavíkurborg er nú að úthýsa af svæðinu. Mögulega hefur núverandi borgarstjórn aldrei lofað að hlúa að listum og menningu, og hefur þarmeð ekki svikið nein fyrirheit um stuðning við grasrót og frumkvöðlastarf. En ég óttast að þessi fallöxi sem hún nú lætur falla á stóran og fjölbreyttan hóp fólks í skapandi greinum sé táknræn fyrir gildismat hennar - gildismat sem mun bitna á menningar- og mannlífi Reykjavíkurborgar. Höfundur er ljósmyndari og rekur hljóðver í Listhúsinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Menning Sveitarstjórnarmál Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar