Erlent

Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vladimír Pútín heimsótti Síberíu í ágúst.
Vladimír Pútín heimsótti Síberíu í ágúst. EPA/GAVRIIL GRIGOROV

Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið.

Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að markmiði að rannsaka pestir, oftast kenndar við plágu, hafi látist. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar hafa greint frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni.

Fram kemur í umfjöllun CNN að rússnesk stjórnvöld hafi þráast við að deila upplýsingum um atvikið með stjórnvöldum í Bandaríkjunum. Áður hefur verið haft eftir fulltrúum rússneskra sóttvarnaryfirvalda að ekki sé um hættuástand að ræða.

CNN segir að Bandaríkin hafi sent Rússlandi formlega diplómatíska orðsendingu í gær og krafist svara um atvikið. Þá hefur miðillinn eftir talsmanni bandaríska utanríkisráðuneytisins að Bandaríkin eigi einnig í samskipti við önnur ríki vegna málsins.

Miðillinn lætur þess getið að Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi svarað spurningum um málið í gær. Það gerði hann á Íslandi. „Það hvílir augljóslega á Rússum að deila meiri upplýsingum með umheiminum,“ sagði Rubio. „Kannski er þetta umfangsmeira en við héldum. Við vitum það ekki, en ég tel að það væri óábyrgt á þessari stundu, miðað við þær takmörkuðu upplýsingar sem við höfum enn, að vera með getgátur.“

Þá segir CNN að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi sagt við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í gær að hann myndi brátt slá á þráðinn til Vladimír Pútíns vegna málsins. Rússnesk stjórnvöld hafa sagt að ekkert slíkt símtal sé á dagskrá. CNN hefur eftir heimildarmönnum að bandarískir embættismenn velti vöngum yfir því hve hreinskilnir Rússar séu vegna málsins.

Meðal mikilvægra spurninga þess sem sé enn ósvarað sé nákvæmlega hvernig starfsmaðurin hafi látist. Rússnesk sóttvarnaryfirvöld hafa sagt hana hafa látist úr óþekktum lungnasjúkdómi. Starfsfólk stofnunarinnar rannsaki plágu auk fjölda annarra hættulegra sjúkdóma, þar á meðal kóleru og miltisbrand.

Þá leiti bandarísk stjórnvöld einnig svara við því hvort um sé að ræða sjúkdóm sem breytt hafi verið af mannavöldum með einhverjum hætti. Þau hafa ítrekað að þau fylgist náið með málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×