Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar 7. október 2026 13:01 Þann 11. september s.l. gáfu Matvælastofnun (MAST) og Umhverfisstofnun út leyfi fyrir 10 þúsund tonna sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfirði þrátt fyrir „fordæmalausa andstöðu“ íbúa bæjarins, eins og það er orðað í umsögn Skipulagsstofnunar. Ef við meinum eitthvað með hugtökum eins og íbúalýðræði, sjálfsákvörðunarrétti samfélaga og sterku sveitarstjórnarstigi hlýtur vilji fólks um framtíð eigin heimabyggðar að hafa raunverulegt vægi. Það hlýtur að vera hægt að segja: Við viljum ekki þessa atvinnustarfsemi og leyfum okkur að hafa aðrar hugmyndir um framtíð samfélagsins. Hinum megin við þetta nei er nefnilega spennandi já: tækifæri til að byggja áfram upp fjölbreytt atvinnulíf sem sækir styrk sinn í náttúruna, menninguna og sérstöðu Seyðisfjarðar í stað þess að fórna þeim gæðum. Í sex ár hafa íbúar á Seyðisfirði legið yfir gögnum, leitað til sérfræðinga, sent erindi, fundað með stofnunum, þingmönnum og ráðherrum og bent á fjölmörg álitaefni varðandi m.a. skipulag, ofanflóðahættu, siglingaöryggi, fjarskiptainnviði, náttúru og lífríki og sjálft leyfisferlið. Það hefði verið ágætt að sleppa við þetta en þegar traust til stofnana í samfélaginu er í skötulíki þarf almenningur að bretta upp ermarnar. Þrátt fyrir þetta hélt ferlið áfram, stofnun eftir stofnun, skref fyrir skref, þar til leiðin að leyfisveitingunni fannst. Ígrundaðasta leyfisveiting hingað til Hvað segja ráðherrarnir nú? Jú, „þetta er búið að vera í lögformlegu ferli“ og „það hefði verið betra að fá ný lög um lagareldi, leitt að frumvarpið náðist ekki í gegn.“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra gekk svo skrefinu lengra núna nýlega og sagði leyfin í Seyðisfirði sennilega „þau ígrunduðustu sem veitt hafi verið.“ Það eru öfugmæli ársins! Að ferlið hafi tekið langan tíma sýnir ekki hversu vel ígrundaða niðurstöðu, heldur hversu erfitt hefur reynst að koma þessari starfsemi fyrir í firði sem ber hana ekki. Þrautaganga er núna notuð sem gæðastimpill á niðurstöðuna. Ergo: Það er ekki pólitískur vilji til að stöðva málið og röng niðurstaða liggur fyrir, náttúrunni, lífríkinu og Seyðfirðingum til mikils tjóns. Stundum er viljinn fyrir hendi Ég hitti Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis- og orkumálaráðherra nýlega á förnum vegi. Hann tjáði mér að hann hefði svo gjarnan viljað stöðva leyfisveitinguna en ekki fundið lögfræðilega leið til þess. Áhugavert í því ljósi að þegar lagalegar hindranir stóðu í vegi fyrir Hvammsvirkjun reyndist létt verk að ryðja þeim burt. Lögunum var einfaldlega breytt til að greiða leið fyrir framkvæmdinni. Og nú er Hamarsvirkjun á Austurlandi aftur komin á dagskrá, þótt verkefnisstjórn rammaáætlunar hafi, að undangengnu mati faghópa, lagt til að virkjunin færi í verndarflokk. Í því mati var Hamarsvirkjun talin stofna til illdeilna í nærsamfélaginu og hafa neikvæð áhrif á umhverfi með miklu inngripi í ósnortin víðerni, Lónsöræfi og Hraunasvæðið. Sú niðurstaða fékk ekki að standa óbreytt og virkjunin færð í biðflokk. Nú er þrýst á að færa hana í nýtingarflokk. Málin eru lagalega ólík en sýna hversu miklu pólitískur vilji getur breytt um framgang mála. Austurvöllur + Seyðisfjörður, sunnudaginn 11. október! Á Seyðisfirði hefur fólk barist í sex ár. Það hefur sagt skýrt nei. Nú þegar leyfið er komið má öll sú vinna ekki gufa upp, að við verðum reið í nokkrar vikur en leyfa svo kerfinu að sigra á úthaldinu. Þetta fólk er í vinnu fyrir okkur, ekki norsk stórfyrirtæki. Við erum í dauðafæri til að ná fram réttlæti fyrir Seyðisfjörð og náttúru Íslands sem virðist ekki eiga sér marga málsvara á Alþingi Íslands - við ætlum að nýta það. Landvernd, NASF (North Atlantic Salmon Fund) og Vá! – Félag um vernd fjarðar ásamt breiðfylkingu náttúruverndarsamtaka, munu standa fyrir fundi á Austurvelli og streymt verður frá aðgerðum á Seyðisfirði á mótmælunum, Nú er ögurstund. Vinir náttúrunnar þurfa að láta sjá sig og láta í sér heyra. Sjáumst á Austurvelli og Seyðisfirði, sunnudaginn 11. október kl. 15. Höfundur er formaður VÁ! félags um vernd fjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun