Viðskipti erlent

Not­endur ASOS fá til­kynningu frá meintum tölvu­þrjótum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þeir sem eru með ASOS-forritið í símanum fengu tilkynningu.
Þeir sem eru með ASOS-forritið í símanum fengu tilkynningu. Getty

Notendur forrits tískuvörurisans ASOS fengu undarleg skilaboð í morgun sem virðast hafa verið send af tölvuþrjótum sem reyna að kúga fé út úr fyrirtækinu. 

Íslendingar eru meðal þeirra sem hafa fengið tilkynningu frá tölvuþrjótunum sem er beint til eigenda ASOS. Um er að ræða vinsæla breska netverslun þar sem alls kyns tískufatnaður er til sölu.

Þessi skilaboð blöstu við íslenskum notanda.Aðsend

Í skilaboðunum segir að tölvuþrjótarnir hafi náð fullum yfirráðum yfir Snowflake sem er gagnageymslufyrirtæki sem tugir fyrirtækja nota til að geyma og greina gögn. 

Samkvæmt umfjöllun BBC hefur ekki verið staðfest að tölvuþrjótarnir hafi komist yfir mikilvægar upplýsingar þar sem alla jafna fara fjárkúganir sem þessar fram í kyrrþey. Snowflake hefur áður tengst gagnalekum svo sem þegar ráðist var á síðu Ticketmaster.

Ekkert svar né tilkynning hefur borist frá forsvarsmönnum ASOS.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×