Innlent

Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum

Samúel Karl Ólason skrifar
Alls voru 170 mál skráð í kerfi lögreglunnar í dag.
Alls voru 170 mál skráð í kerfi lögreglunnar í dag. Vísir/Vilhelm

Brotist var inn í að minnsta kosti fjóra bíla í þremur hverfum höfuðborgarsvæðisins í dag og í eina verslun. Þá var ráðist á leigubílstjóra í Hlíðunum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar fyrri daginn í dag. Alls voru 170 mál skráð í kerfi lögreglunnar í dag og gistu þrír í fangageymslu í kvöld.

Í dagbókinni segir að brotist hafi verið inn í einn bíl í Hlíðahverfi, einn í Múlahverfi og tvo í Breiðholti í dag. Öll innbrotin eru sögð í rannsókn.

Þá var einnig tilkynnt um innbrot í verslun í miðbænum en sá sem braust þar inn var handtekinn skömmu síðar.

Tilkynnt var um þjófnað úr tveimur verslunum í Hlíðahverfi og einni í Grafarvogi. Allir gerendur voru á staðnum þegar lögregluþjóna bar að garði.

Lögregluþjónar handtóku þar að auki mann í Árbæ sem sagður er dvelja ólöglega hér á landi. Hann var fluttur á lögreglustöð og er málið til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×