Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Áróra L Davíðsdóttir skrifar 5. október 2026 18:13 Halla Gunnarsdóttir er formaður VR. Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess. „
Akkúrat núna þá tel ég meiri líkur en minni á að við segjum upp kjarasamningum,“ sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, um kjarasamninga í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Greint var frá því í dag að trúnaðarráð VR og stjórn félagsins muni funda kl. 17:30 þar sem farið yrði yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. „Það er rosalega alvarlegt fyrir okkur sem stöndum í forystu stéttarfélaga að horfa í augu okkar félagsfólks og segja: Já, þið hafið fengið launalækkanir á tímum gríðarlega hárra stýrivaxta. Og nú ætlum við bara að bíða og sjá og láta ykkur taka aðra eins lækkun núna í hálft annað ár til viðbótar,“ sagði Halla. Viðtalið við Höllu í heild sinni má sjá hér í spilaranum að neðan. VR hafi kynnt ýmsar lausnir fyrir SA. Í dag hafi VR fengið viðbrögð frá SA en Halla segir þau hafa verið staðfestingu á því að samtökin hafi ekki „trú á verkefninu“. „Í rauninni snýst verkefnið bara um það að launafólk eigi áfram eitt að bera áhættuna, eigi áfram eitt að bera byrðarnar af óvissu í hérna alþjóðamálum og svona væringum í efnahagslífinu á meðan allir aðrir ætla að verða stikkfrí.“ Í yfirlýsingu frá SA fullyrða samtökin að þau hafi staðið að fullu við gerða samninga og kalla forsvarsmennirnir eftir því að umræðan um kjaramálin byggi á staðreyndum og gagnkvæmri virðingu. Sjá einnig: Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld „SA vilja áfram vinna með verkalýðshreyfingunni og stjórnvöldum að niðurstöðu sem tryggir að samningarnir haldi og stuðlar að varanlegum stöðugleika,“ segir í yfirlýsingunni. Verði samningunum sagt upp á fimmtudag falli þeir úr gildi 31. október og þá geti opinberu félögin einnig sagt upp samningum kjósi þau að gera það. Ótímabært sé að segja til um verkfallsaðgerðir verði af uppsögnum kjarasamninga en „það verður mikil harka á vinnumarkaði ef þetta verður niðurstaðan,“ segir Halla.
Kjaramál Atvinnurekendur Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. 5. október 2026 13:34 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. 5. október 2026 13:34