Handbolti

Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í hand­bolta?

Andri Broddason skrifar
Ísland gæti þurft að venjast því að spila ekki sjö á móti sex.
Ísland gæti þurft að venjast því að spila ekki sjö á móti sex. Vilhelm/Vísir

Umræður eru innan handboltaheimsins um hvort banna eigi að lið geti spilað með sjö útileikmönnum gegn sex. Reglan verður mögulega prófuð á næsta ári á heimsmeistaramóti unglinga.

Algengt er að handboltalið taki markmanninn sinn af velli þegar liðið er í sókn og setji annan útileikmann í staðinn inn á völlinn. Við það er liðið með fleiri sóknarmenn á vellinum heldur en varnarmenn andstæðinganna.

Þetta er þó ekki áhættulaust þar sem ef liðið missir boltann með engan markmann þá er markið autt. Þá geta mótherjarnir auðveldlega skorað en hefur þessi aðferð fengið gagnrýni hjá áhorfendum og leikmönnum.

Forseti franska handboltasambandsins sem er jafnframt varaforseti Alþjóðahandboltasambandsins, Philippe Bana, staðfestir við miðilinn handnews.fr að umræða sé innan Alþjóðahandboltasambandsins um að banna að hægt sé að spila sjö á móti sex.

Það er þó ekki búið að taka neina ákvörðun um regluna en það spratt upp hugmynd að prófa hana á heimsmeistaramóti unglinga og sjá hvernig það gengur. Ef reglan myndi heppnast þar og gera leikinn meira spennandi þá væri hægt að innleiða regluna í handbolta.

Mögulega verður reglan ekki beint bönnuð heldur í staðinn settar hömlur á hana þannig að lið græða ekki jafn mikið á henni og lið geta núna. Það er þó ekki búið að ákveða neitt og allt eru þetta hugmyndir á blaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×