Enski boltinn

Ó­væntur með­limur á liðsmynd Manchester United

Andri Broddason skrifar
JJ Gabriel er staddur á liðsmynd Manchester United en hann er staddur í miðju röðinni númer átta frá vinstri.
JJ Gabriel er staddur á liðsmynd Manchester United en hann er staddur í miðju röðinni númer átta frá vinstri. Ash Donelon/Getty Images

Á samfélagsmiðlum Manchester United var deilt mynd hópmynd af liðinu ásamt þjálfara liðsins, Michael Carrick. Ungstirnið JJ Gabriel er staddur á myndinni þrátt fyrir að hann sé í miklum deilum við félagið.

Þrátt fyrir að JJ Gabriel sé á mynd Manchester United virðist leikmaðurinn ekki vera að ná sáttum við félagið eftir að hann tilkynnti að hann vildi fara frá félaginu snemma á tímabilinu. Samkvæmt heimildum BBC Sport var myndin tekin 8. september sem var tveimur dögum áður en JJ Gabriel spilaði sinn síðasta leik fyrir félagið.

Enska félagið hefur haft samband við Gabriel og aðstandendur hans til þess að reyna að ná sáttum en án árangurs. Gabriel hefur heimsótt önnur stórlið í Evrópu en hefur ekki enn náð samkomulagi við annað félag.

Ástæðan fyrir því að Gabriel bað um að fara var vegna þess að hann fékk ekki að spila þegar Manchester United mætti Sabah FK í Meistaradeild Evrópu karla. Stjórnendur Manchester United hafa þó sagt að líklega hafi hann fengið tækifæri í Carabao-bikarnum þar sem liðið mætti Brighton í vikunni á eftir.

JJ Gabriel verður 16 ára á morgun og hefði hann fengið að spila í öðru hvorum leiknum þá hefði hann orðið yngsti leikmaður í sögu félagsins til þess að spila. Hann fékk þó að æfa með aðalliði félagsins og var hann hluti af liðinu ef marka má liðsmynd félagsins. Leikmaðurinn ungi hefur þó haft takmarkaða þolinmæði og virðist ekki lengur vera hluti af framtíð félagsins.

Einnig á myndinni sést í Manuel Ugarte sem hefur verið frá vegna meiðsla. Hann virðist þó ekki hafa verið viðstaddur myndatökuna og hefur verið settur inn á myndina eftir á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×