Skoðun

Hve­nær ætti gjafakort að renna út?

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Gjafakort eða gjafabréf eru vinsælar tækifærisgjafir, stundum fyrir umtalsverðar upphæðir. Þau geta verið þægileg þegar erfitt er að vita hvað fólk langar í. Gjafakort gefa einnig viðtakandanum frelsi til að velja.

Margir kannast hins vegar eflaust við að hafa gleymt gjafakorti ofan í skúffu eða veski, eða að kortið hafi týnst tímabundið og finnist kannski þegar gildistíminn er liðinn.

Það vekur auðvitað upp spurningar um hvert fjármunirnir fara.

Á bak við hvert gjafakort eru raunverulegir fjármunir. Greitt hefur verið fyrirfram fyrir vöru eða þjónustu sem afhenda á síðar. Sé það aldrei notað hefur fyrirtækið fengið greiðslu án þess að afhenda nokkuð á móti.

Þetta er umhugsunarvert.

Ekki alveg einfalt

Ég hef verið að skoða hvort nauðsynlegt sé að leggja fram frumvarp um réttindi eigenda gjafakorta. Upphaflega var hugmyndin að setja skýran lágmarksgildistíma á gjafakort, til dæmis fjögur ár. Eftir að hafa skoðað málið betur verður sú spurning áleitnari hvers vegna gjafakort sem greitt hefur verið fyrir ætti yfirhöfuð að renna út.

Rökin fyrir ótímabundnum gildistíma eru sterk. Fyrirtækið hefur fengið fjármunina en ekki látið vöru eða þjónustu af hendi. Hvers vegna ætti réttur handhafa kortsins þá að falla niður?

En málið er ekki alveg svo einfalt.

Ótímabundinn gildistími gæti þýtt að fyrirtæki þyrftu að halda utan um gamlar skuldbindingar árum eða áratugum saman. Skoða þyrfti hvernig bókfæra ætti slíkar skuldbindingar í rekstri fyrirtækja og hvernig þær samræmdust almennum reglum um fyrningu. Fyrirtæki geta líka hætt starfsemi, skipt um eigendur eða breytt starfsemi sinni. Stundum kunna einnig að vera málefnalegar ástæður fyrir takmörkuðum gildistíma.

Hvar á að draga mörkin?

Við vinnslu málsins hef ég meðal annars leitað eftir upplýsingum og sjónarmiðum hjá Neytendasamtökunum. Samtökin benda á að allur gangur sé á gildistíma gjafakorta. Sum fyrirtæki setji engan gildistíma og annars staðar sé gildistíminn mjög skammur. Miklu skipti að neytandinn sé upplýstur við kaupin um hvaða skilmálar gildi.

Ég tel rétt að skoða þessi mál mjög vel með hag og réttindi neytenda að leiðarljósi. Reglurnar þurfa að vera skýrar og sanngjarnar. Bæði þeir sem kaupa gjafakort og þeir sem fá þau að gjöf þurfa að vera vel upplýstir um hvað þeir eru með í höndunum og hverjir skilmálarnir eru.

Gjafakort á að vera gleðigjöf, ekki gjöf sem hverfur vegna smáa letursins.

Höfundur er þingkona Flokks fólksins.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×