Innlent

Ögur­stund í kjara­samninga­málum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.

Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif.

Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf. 

Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. 

Lögreglan ákveður síðar í dag hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manni sem var handtekinn við komu til landsins í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi. Handtakan tengist rannsókn á fíkniefnasölu og peningaþvætti, en sautján manns voru handteknir vegna málsins í síðasta mánuði.

Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári.

Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor.

Í sportinu fjöllum við um landsleik Írlands og Ísraels sem fór fram í gær og hitum upp fyrir lokaleik Íslands þennan landsleikjagluggann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×