„Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. október 2026 10:56 Halldór Eldjárn er mikill grúskari og dútlari og á tónleikasýningu sinni á miðvikudaginn mun hann spila á tvö frumsmíðuð hljóðfæri. Vísir/Anton Brink Halldór Eldjárn heldur tónleikasýningu, blöndu af tónleikum og sýningu, í Tjarnarbíói á miðvikudaginn og smíðaði fyrir hana tvö ný hljóðfæri. Annars vegar byggði hann pípuorgel frá grunni og hins vegar endurskapaði hann kliðhörpu, íslenskt hljóðfæri sem uppfinningamaðurinn Magnús K. Guðnason bjó til á fyrri hluta síðustu aldar. Sá lifði við harðan kost og keyrði sig áfram á hugsjóninni.
Halldór Eldjárn er altmuligtmand, allt í senn tónlistarmaður, myndlistarmaður og forritari. Hann hefur verið í hljómsveitinni Sykri síðan 2008 en fengist við eigin tónsmíðar síðustu ár auk myndlistarsköpunar og tölvugrúsks, sem er oftar en ekki hluti af listsköpuninni. „Ég hef alltaf verið að grúska og alltaf verið að semja. Árið 2019 gaf ég út mína fyrstu sólóplötu, Poco Apollo, sem byrjaði sem svona veftónverk. Ég bjó til forrit sem bjó til tónlist út frá myndum af tunglferðunum og svo útsetti ég nokkrar af þeim myndum fyrir hljómsveit og tók upp sem plötu,“ segir Halldór um sínar fyrstu sóló tónsmíðar. Sykur skipa Kristján Eldjárn, Agnes Björt Andradóttir, Stefán Finnbogason og Halldór Eldjárn.SAGA SIG Hvernig er munurinn á að vera í hljómsveit og því að semja eigin tónsmíðar? „Það er náttúrulega eitthvað sem fylgir manni, eitthvað sem maður ræður ekki við, eitthvað sánd. Þeir sem þekkja mig vita að þetta kemur ekki á óvart komandi frá mér,“ segir hann um sína eigin tónlist. „Sykur hefur aldrei verið hugsuð sem popphljómsveit og í seinni tíð hef ég verið að enduruppgötva hvað Sykur er og reynt að átta mig á því hvar við vinnum og hvar við pössum best inn. Við erum í raun kollektív, hópur listamanna sem finnst skemmtilegast að gera tilraunir og svo eru poppuð element í því,“ bætir hann við. „Mitt stöff er tilraunakennt en ég legg mikið upp úr því að tónlistin mín sé aðgengileg, það er minn persónulegi smekkur sem ræður því.“ Flakkar milli vinnustofanna tveggja Halldór er óhefðbundinn tónlistarmaður að því leyti að tónlistin tengist svo náið tæknidútli og leik að tækninni, sem hafa verið hugðarefni Halldórs lengi. „Ég hef alltaf verið mikill tölvunörd í mér alla tíð. Svo opnaðist heill heimur fyrir mér þegar ég uppgötvaði Arduino og forritanlegar smátölvur sem er hægt að láta stýra straum á mótora og búa til einhverja hreyfingu, það sem í daglegu tali er kallað róbota-tækni,“ segir Halldór. „Í grunninn hefur alltaf verið tónlistartaug í mér og allt sem ég legg fyrir mig kemur heim í tónlistina á einhverjum tímapunkti. Mér finnst líka gaman að nálgast á mekanískan hátt jafn mannlegan og lífrænan hlut og tónlist er.“ Halldór Eldjárn Halldór Eldjárn tónlistarmaðurVísir/Anton Brink Er þetta alltaf algjörlega samtvinnað? Byrjarðu að semja og tengir svo við tæknina eða öfugt. Er þetta kannski allt í belg og biðu? „Þetta er dálítið samtal. Ég er með tvær vinnustofur, önnur er hreint og beint hljóðver með hljóðfærum og öllu til að búa til tónlist. Hin vinnustofan er með öllu rafmagns- og smíðadótinu mínu og ég hoppa dálítið á milli,“ segir Halldór. „Ég fæ kannski hugmynd að einhverju hljóði og veit hvernig ég myndi gera það með mótor og streng. Þá fer ég á vinnustofuna og reyni að smíða það og svo hleyp ég með það yfir í stúdíóið og tek það upp. Svo kemur kannski eitthvað allt annað út úr því og það hljómar allt öðruvísi en það átti að hljóma.“ „Langt á undan sinni samtíð og féll svo í hálfgerða gleymsku“ Halldór heldur tónleikasýningu sína á miðvikudaginn en þar blandast tónleikar við sýningu á hljóðfærum með spjalli þar á milli. Halldór mun sýna frá átta nótna pípuorgeli sem hann smíðaði sjálfur frá grunni og kliðhörpu, íslensku hljóðfæri sem uppfinningamaðurinn Magnús K. Guðnason smíðaði í kringum 1930. Magnús K. Guðnason fæddist 1893 og lést árið 1974.Ísmús „Þessi maður var bátasmiður, gerðist síðar uppfinningamaður og fann upp allan andskotann. Hann bjó til eina fyrstu framleiðslulínuna fyrir harðfiskgerð, svo var hann með tillögu að botnvörpu og fann upp nuddtæki. Alls konar klikkaðar hugmyndir,“ segir Halldór um Magnús. „En hann vildi ekkert kredit og ekkert sviðsljós og helst ekki græða neinn pening á þessu. Hann lærði á fiðlu, var músíkalskur og fór af einhverjum ástæðum að smíða gítara. Hann ákvað að rafmagn og tónlist ættu saman og tókst að búa til hljóðfæri sem hann kallaði kliðhörpu.“ Halldór lýsir kliðhörpunni sem litlu píanói með nótnaborði og strengjum nema í staðinn fyrir hamar er hljóðfærið með plokkara tengdan við mótor. „Þegar þú ýtir á nóturnar þá plokka þessir mótorar í strengina og það kemur hálfgert mandólínhljóð. Mér fannst alveg ruglað að einhver á þessum tíma, milli stríða, væri að vinna í því hér að búa til rafhljóðfæri,“ segir Halldór. Kliðharpa Magnúsar sem endaði á haugunum. Á þessum tíma voru rafmögnuð hljóðfæri skammt á veg komin en á þriðja áratugnum komu fram frumgerðir að rafhljóðfærum á borð við þeremín, trautonium og Ondes Martenot og svo færðist meira alvara í slíkar pælingar á fjórða áratugnum. „Þeremínið hafði verið fundið upp þarna en ég veit ekki hvort það var komið til Íslands. Ég veit ekki hvað þessi Magnús hefur lesið eða vitað mikið en ég held að þetta hafi verið algjörlega hans frumlega hugmynd. Hann sá að það þurfti hreyfingu til að víbra streng og var vanur að vinna með mótora,“ segir Halldór. „Rafmagn var frekar nýleg uppfinning á þessum tíma, en hann var kannski bara álitinn skrítinn fyrir að vera að pæla í þessu og halda að þetta gæti allt saman gengið. En síðan er þetta bara veruleikinn sem við búum við í dag. Hann var í raun bara langt, langt á undan sinni samtíð og féll svo í hálfgerða gleymsku.“ „Hann fórnaði sér fyrir þetta“ Kliðharpan er varðveitt í einhverri mynd á Byggðasafni Vestfjarða og svo bjó Magnús einnig til hljóðfærið strokhörpu sem var eins nema með boga sem strauk strengina. Hljóðupptökur úr báðum hljóðfærum er að finna inni á gagnasafninu Ísmús. „Fyrir nokkrum árum var ég fenginn til þess að sýningarstýra sýningu um íslensk hljóðfæri og ég fór í smá rannsóknarvinnu og óskaði eftir upplýsingum um hvaða hljóðfæri hefðu verið smíðuð og fundin upp á Íslandi,“ segir Halldór um það hvernig Magnús rak á fjöru hans. Strokharpa Magnúsar sem hefur ekki varðveist til dagsins í dag. Einn þeirra sem aðstoðuðu Halldór í rannsóknarvinnunni var Bjarki Sveinbjörnsson á Tónlistarsafni Íslands sem bjó yfir upplýsingum um Magnús og minjum úr safni hans. „Það varð mjög spennandi móment. Hann bauð mér í heimsókn á Tónlistarsafnið og dró fram tvo kassa með teikningum og ljósmyndum, sem hafði tekist að bjarga, af þessum hljóðfærum,“ segir Halldór. Kassarnir geymdu efni frá því um 1950 þegar haldin var sýning á Þjóðminjasafninu með hinu og þessu úr safni Magnúsar. „Svo er eins og hann hafi bara horfið enda var hann ekkert að trana sér fram. Hann vildi greinilega ekki mikla athygli og keyrði sig fyrst og fremst áfram á uppfinningagleðinni og fékk hugmyndir sem hann varð að koma í framkvæmd. Ég tengi við þá hlið á manninum þó ég viti ekkert mikið meira um hann,“ segir Halldór. „Hann átti velgjörðarmenn sem sáu einhverja möguleika í þessu hjá honum og voru að reyna að sækja um styrki fyrir hann til þess að fá einkaleyfi fyrir einhverjum af hugmyndunum. Snerist allt dálítið um það að ná einkaleyfinu en svo hefur það greinilega allt runnið í sandinn,“ segir Halldór en Magnús lést svo árið 1974. Halldór spilar á kliðhörpuna.Vísir/Anton Brink Þessi horfni heimur hefur setið í Halldóri síðan þá. Fólk eigi það til að einfalda fortíðina og líta á fólk í gamla daga sem vitlaust þegar raunin er að fólk hafi verið að pæla í alls konar hlutum og hugsa út fyrir kassann. Sem betur fer hafi tilraunir Magnúsar varðveist. „Hann fórnaði sér fyrir þetta. Í þessi tíu ár sem hann vann að þessari kliðhörpu þá bara lá við að hann myndi svelta af því að hann átti ekki mikinn pening og lifði fátæklega en var alltaf með hugsjónina í gangi, alltaf að smíða og alltaf að pæla. Dálítið magnaður maður.“ Á síðasta ári ákvað Halldór að reyna að smíða sína eigin útgáfu af kliðhörpunni og hefur unnið markvisst að því á síðustu mánuðum. Hans útgáfa er þó gjörólík uppfinningu Magnúsar og á það eitt sameiginlegt að það eru mótorar sem plokka strengi hljóðfærisins. Halldór spilar á kliðhörpuna með hljómborði.Vísir/Anton Brink „Mín útfærsla er allt öðruvísi. Ég hef aðgang að mun smærri og þróaðri tækjum en hann og svo er ég með tækni sem hefur hjálpað mér gríðarlega,“ segir Halldór og nefnir til dæmis þrívíddarprentarann. Halldór hefur unnið baki brotnu að því að setja saman hljóðfærið, sem er samsett úr 24 strengjum og um tvö- til þrjúhundruð smáhlutum, síðustu vikurnar fyrir tónleikana. „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá en þetta er að smella saman núna á lokametrunum og verður spennandi að sjá hvort þetta spili þegar tónleikarnir verða,“ segir Halldór. Eitthvað hljóð muni heyrast. Vanir orgelsmiðir myndu hlæja Kliðharpan er annað af tveimur hljóðfærum sem Halldór hefur verið að smíða frá grunni fyrir tónleikana, hitt er pípuorgel úr lífrænu plastefni. „Ég fór þá leið að þrívíddarprenta pípurnar. Ég hefði getað smíðað þær úr tré en ákvað að stytta mér leið og fannst það skemmtileg áskorun. Ef maður fylgir reglunum um stærðir og vegalengdir þá fær maður hljóð út úr pípunni þó að manni finnist það ótrúlegt,“ segir Halldór. Frumsmíðað átta nótu pípuorgel og tveir gítarar.Vísir/Anton Hann hefur rekið sig á ýmsar hindranir við smíðina á síðustu vikum. „Ég hef þurft að lagfæra mína hönnun dálítið. Ef maður ætlar að stytta sér leið þá kemur það oft í bakið á manni,“ segir hann. „Vanir orgelsmiðir myndu örugglega horfa á þetta ferli og hlæja að mér. En málið var að ég, í minni rannsóknarvinnu, varð að prófa þetta á eigin skinni: Hvað er það sem skiptir máli og hvar getur maður stytt sér leið?“ View this post on Instagram A post shared by Halldór Eldjárn (@halldorel) „Þetta er búið að vera ótrúlega gaman en líka mjög krefjandi og ótrúlega erfitt þegar eitthvað virkar ekki í marga daga í röð og manni líður eins og maður sé eitthvað vitlaust. En svo að lokum, ef maður reynir nógu mikið, þá smellur þetta og nú er ég með orgel sem syngur. Það er bara átta nótur, sem er allt í lagi fyrir mína músík,“ segir Halldór. Leitar maður í orgelsmíðabókum eða á netinu? Hvar byrjar maður? „Það er mikið til af þessu á netinu. Svo hef ég fengið aðeins að krukka í pípuorgelinu í Hallgrímskirkju en ég samdi verk fyrir það árið 2019 sem var flutt á tónlistarhátíð,“ segir Halldór. Pípurnar í orgeli Hallgrímskirkju eru aðeins fleiri en í orgeli Halldórs, eða rúmlega 5.700 talsins. View this post on Instagram A post shared by Halldór Eldjárn (@halldorel) „Ég fékk að sitja þarna í Hallgrímskirkju á nóttunni í tvær vikur að leika mér með þetta risastóra orgel, alveg aleinn í myrkrinu sem var ógeðslega gaman. Þar kviknaði líka áhugi og skilningur á því hvernig þetta virkar,“ segir Halldór. Flækist þetta tæknidútl aldrei fyrir tónsköpuninni? „Þetta gerir það alveg, það eru sumar græjur sem ég á í stúdíóinu sem ég má ekki koma nálægt ef ég ætla að klára eitthvað. Ég á svona „modular synthesizer“ sem er í kassa sem ég kalla Pandóruboxið af því ef ég opna það þá sogast allur tími í heiminum inn í það og ég klára ekki neitt,“ segir Halldór. Kliðharpan er komin í gang.Vísir/Anton Brink Hann sé slagverksleikari með burtfarapróf úr FÍH og grunn í djassi og rytmískri tónlist þannig að hann leggi mikið upp úr lifandi tónlistarflutningi. „Þetta er einhver leið til að taka þessa raftónlist, sem ég hef verið að hrærast í, út úr tölvunni og inn í efnisheiminn. Hreyfa við strengjum og plokka í trommur með mótorum. Með því að gera það kemur þetta organíska element alveg óvart.“ Frásagnarlistin notuð til að ramma tónlistina inn Tónleikasýningin á miðvikudaginn verður einhvers konar blanda af tónlist og frásögn þar sem Halldór mun spila á ýmis hljóðfæri og spjalla inn á milli við áhorfendur um það sem honum dettur í hug, segja söguna af tilkomu hljóðfæranna og vekja upp spurningar. „Tónlist er á skrítnum stað almennt með tilkomu gervigreindar sem getur apað eftir skapaðri tónlist og kallað sig nýja tónlist. Fólk er einhvern veginn að átta sig á því hvernig og hvort það eigi að vinna með þessa tækni. Tónleikahald hefur þá fengið nýtt vægi en samt finnst fólki ekkert endilega alltaf mjög mikilvægt að mæta á tónleika nema þeir sem eru miklir tónlistaraðdáendur,“ segir Halldór. Halldór Eldjárn er ýmist að grúska í tölvum eða tónlistinni.Vísir/Anton Brink „Margir tónlistarmenn í poppinu eru farnir að halda eitthvað sem er meira en tónleikar, einhvers konar sýningar, þar sem tónlistin er jafnvel komin í aukahlutverk og þetta snýst meira um að búa til flottar aðstæður og fá fullt af fólki til að mæta. Ég er ekki að reyna að gera það en ég er að reyna að taka tilraunamennskuna og setja í öðruvísi samhengi,“ segir hann. „Þetta er ekki bara óundirbúið gigg í Mengi þó að það geti líka verið mjög hressandi og skemmtilegt. Það er búið að hugsa þetta og verið að nota ljósin og hljóðin í leikhúsinu og frásagnarlistina til þess að ramma tónlistina inn.“ Hægt er að næla sér í miða á Tix á tónleikasýningu Halldórs sem fer fram í Tjarnarbíói á miðvikudaginn 14. október næstkomandi. Fyrir utan tónleikasýninguna er ýmislegt á dagskrá hjá Halldóri, hann er að gefa út plötu með söngkonunni Rakel á næstunni, spilar á Áramótaskopi Ara bróður síns og verður svo í vinnustofudvöl í Hönnunarsafni Íslands frá desember fram í febrúar.
Tónleikar á Íslandi Tímamót Reykjavík Tónlist Tengdar fréttir Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Tónlistarmaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Halldór Eldjárn réðist í það verkefni að grafa upp íslenska textann á fyrstu sjö seríunum af Simpson-fjölskyldunni og taka hann saman í bók. Hann segir þýðingu texta vera listform og að mikil verðmæti tapist ef þýðendum verði skipt út fyrir gervigreind. 8. september 2026 11:03 Mest lesið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Áskorun Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira
Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Tónlistarmaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Halldór Eldjárn réðist í það verkefni að grafa upp íslenska textann á fyrstu sjö seríunum af Simpson-fjölskyldunni og taka hann saman í bók. Hann segir þýðingu texta vera listform og að mikil verðmæti tapist ef þýðendum verði skipt út fyrir gervigreind. 8. september 2026 11:03