Taktík Jens Garðar Helgason skrifar 30. september 2026 06:33 „Þetta var taktík.“ Þetta eru orð Örnu Láru Jónsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar og nefndarmanns í fjárlaganefnd Alþingis. Þannig lýsti hún ákvörðun ríkisstjórnarinnar um 5,2% krónutöluskatta og gjalda. Fyrirtækin tóku því alvarlega. Heimilin tóku því alvarlega. Fjármálamarkaðurinn tók því alvarlega. En þjóðin átti víst ekki að gera það. Að sögn Örnu Láru var þetta bara „taktík“ til aðgeta lækkað hana síðar. Vandinn er bara sá að fjárlagafrumvarp er ekki prúttmiði. Verðbólguvæntingar eru ekki leikfang. Og fjárhagur heimilanna má aldrei vera spilapeningur í pólitísku sjónarspili. Hún má kalla þetta taktík. Ég kalla þetta ábyrgðarleysi. Samfylkingarin hefur falið Örnu Láru mikið ábyrgðahlutverk. Hún veit því, eða ætti að vita, að fjárlagafrumvarp er ekki blaðra sem stjórnmálamenn senda á loft til að sjá hvert vindurinn ber hana. Tölurnar hafa áhrif. Orðin hafa áhrif. Boðaðar skattahækkanir hafa áhrif. Fyrirtæki ákveða verð. Launafólk mótar kröfur. Heimilin horfa á vextina og verðtryggðu lánin sín halda áfram að bólgna út. Verðbólgan er komin í 5,9%. Vextir eru 8%. Þetta er ekki stundin til að leika sér með væntingar fólks og fyrirtækja. Enginn ábyrgur skipstjóri stefnir skipinu viljandi á sker til þess eins að geta síðar kallað það taktískt afrek að beygja frá því. Annaðhvort ætlaði ríkisstjórnin að hækka skatta og gjöld um 5,2% eða hún ætlaði það aldrei og setti tölurnar fram til málamynda. Þá var Alþingi og þjóðinni réttur leikþáttur í stað fjárlagafrumvarps. Hvorugt er boðlegt. Sveitarfélögin hafa stigið fram og sett sér 2,5% viðmið. Ríkið átti að gera slíkt hið sama. Ganga á undan. Sýna ábyrgð. Leggja sitt af mörkum. Í staðinn fékk þjóðin skattahækkanir og eftiráútskýringu um að þetta hefði allt saman verið „taktík“. Þar til Kristrún Frostadóttir leiðréttir þessa lýsingu Örnu Láru verður ekki komist hjá því að taka hana alvarlega og sjá fárlagafrumvarpið sem enn eitt pólitíska markaðstrixið. Ríkisstjórnin kalla þetta taktík, þið fáið reikninginn. Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jens Garðar Helgason Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Sjá meira
„Þetta var taktík.“ Þetta eru orð Örnu Láru Jónsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar og nefndarmanns í fjárlaganefnd Alþingis. Þannig lýsti hún ákvörðun ríkisstjórnarinnar um 5,2% krónutöluskatta og gjalda. Fyrirtækin tóku því alvarlega. Heimilin tóku því alvarlega. Fjármálamarkaðurinn tók því alvarlega. En þjóðin átti víst ekki að gera það. Að sögn Örnu Láru var þetta bara „taktík“ til aðgeta lækkað hana síðar. Vandinn er bara sá að fjárlagafrumvarp er ekki prúttmiði. Verðbólguvæntingar eru ekki leikfang. Og fjárhagur heimilanna má aldrei vera spilapeningur í pólitísku sjónarspili. Hún má kalla þetta taktík. Ég kalla þetta ábyrgðarleysi. Samfylkingarin hefur falið Örnu Láru mikið ábyrgðahlutverk. Hún veit því, eða ætti að vita, að fjárlagafrumvarp er ekki blaðra sem stjórnmálamenn senda á loft til að sjá hvert vindurinn ber hana. Tölurnar hafa áhrif. Orðin hafa áhrif. Boðaðar skattahækkanir hafa áhrif. Fyrirtæki ákveða verð. Launafólk mótar kröfur. Heimilin horfa á vextina og verðtryggðu lánin sín halda áfram að bólgna út. Verðbólgan er komin í 5,9%. Vextir eru 8%. Þetta er ekki stundin til að leika sér með væntingar fólks og fyrirtækja. Enginn ábyrgur skipstjóri stefnir skipinu viljandi á sker til þess eins að geta síðar kallað það taktískt afrek að beygja frá því. Annaðhvort ætlaði ríkisstjórnin að hækka skatta og gjöld um 5,2% eða hún ætlaði það aldrei og setti tölurnar fram til málamynda. Þá var Alþingi og þjóðinni réttur leikþáttur í stað fjárlagafrumvarps. Hvorugt er boðlegt. Sveitarfélögin hafa stigið fram og sett sér 2,5% viðmið. Ríkið átti að gera slíkt hið sama. Ganga á undan. Sýna ábyrgð. Leggja sitt af mörkum. Í staðinn fékk þjóðin skattahækkanir og eftiráútskýringu um að þetta hefði allt saman verið „taktík“. Þar til Kristrún Frostadóttir leiðréttir þessa lýsingu Örnu Láru verður ekki komist hjá því að taka hana alvarlega og sjá fárlagafrumvarpið sem enn eitt pólitíska markaðstrixið. Ríkisstjórnin kalla þetta taktík, þið fáið reikninginn. Höfundur er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður Norðausturkjördæmis
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar