Handbolti

Danir fjalla um niður­læginguna á Hlíðar­enda

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnar Róbertsson var frábær í liði Vals í gær. Hann skoraði átta mörk í sigri liðsins. 
Gunnar Róbertsson var frábær í liði Vals í gær. Hann skoraði átta mörk í sigri liðsins.  Vísir/Anton Brink

Fjallað er um stórt tap danska úrvalsdeildarfélagsins Mors-Thy hér á landi gegn Val í dönskum miðlum. Einn helsti handboltasérfæðingur Dana segir að um mikil vonbrigði séu að ræða og um leið hrósar hann Björgvini Páli Gústavssyni.

Valur hreinlega valtaði yfir danska liðið í leik í Evrópudeildinni í handbolta í N1-höllinni að Hlíðarenda í gærkvöldi. Lokatölur 39-28, ellefu marka sigur Vals. 

„Þessi frammistaða hjá Mors-Thy eru mikil vonbrigði,“ skrifaði Bent Nyegaard á vef TV 2 í Danmörku og bendir um leið á að Valur hafi ekki byrjað tímabilið vel í Olís deildinni og sé í áttunda sæti. Nyegaard er einn helsti sérfæðingur Danmerkur um handbolta. 

„Ellefu marka tapið er niðurlæging fyrir leikmenn Mors-Thy. Björgvin Páll, fyrrverandi markvörður Skjern heillaði mig mjög mikið.“

Björgvin Páll var með bestu leikmönnum Vals í leiknum og í viðtali við Vísi eftir leik sagði hann ekkert grín að vinna svona lið með ellefu mörkum.

„Þetta sýnir bara það að það er erfitt að koma í Valsheimilið á Evrópukvöldum. Það var bara gír í okkur, dúkurinn kominn á og við slepptum af okkur beislinu. Það ótrúlega er að við höfum átt tvo slökustu leiki míns ferils í Val, síðustu heimaleiki. Við náðum að snúa því í dag með fólkið á bak við okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×