Hló að svari sambýliskonunnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. september 2026 16:17 Eiginkona Georgios Ntentes bar vitni við aðalmeðferðina í dag. Vísir/Anton Brink Eiginkona Georgis Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martin Zingara á Kársnesi, segist hafa sofið allt kvöldið og ekki vitað neitt hvað hefði átt sér stað.
Vitnisburður eiginkonunnar var töluvert lengri en gert var ráð fyrir og að honum loknum var dagskráin komin áttatíu mínútum yfir áætlaða dagskrá. Hún lýsti atburðum föstudagsins 28. nóvember fyrir dómi og sagðist hafa komið heim þann dag klukkan fjögur síðdegis. Georgis hafi verið heima með ungri dóttur þeirra og hann hafi síðar farið og keypt sígarettur. „Það var föstudagur og ég var þreytt eftir heila viku svo ég sofnaði með barninu. Þetta var í kringum átta,“ sagði hún með aðstoð túlks. Hún hafi síðan sofið alla nóttina en rumskað þegar Ntantes kom heim í skamma stund en síðan séð hann þegar hún vaknaði morguninn eftir. Erfiður mánuður fyrir andlega heilsu Líkt og gefið var til kynna tók vitnisburðurinn afar langan tíma og var farið ítarlega í öll smáatriði. Þar á meðal var saga um áverka Ntentes. Við handtöku í desember 2025 var hann með áverka á hendinni og sagði í sinni skýrslu að hann hefði fengið þá bæði við vinnu sem kokkur, þegar hann aðstoðaði Zingara við framkvæmdavinnu og vegna atviks sem varðaði dóttur hans. Ntentes sagði sjálfur að hann hefði verið að elda með dóttur þeirra og litið af henni skamma stund. Þegar hann leit aftur var hún með hníf í hendinni sem hann greip í og skar sig. Hann sagðist ekki hafa sagt konu sinni frá þessu þar sem hún hefði átt við geðræn vandamál að stríða á þessum tíma. Fyrir dómi sagði eiginkonan að Ntentes hafi sagt henni að hann hefði misst glas og skorið sig á því. Það hafi ekki verið fyrr en í janúar sem hann sagði henni réttu söguna. „Nóvember var mjög erfiður mánuður fyrir mig,“ sagði hún. Sækjandi benti á að samkvæmt skýrslutöku lögreglu þann 4. desember hefði hún heyrt frásögn Ntentes. Hló að svari hennar Þá voru föt Ntentes einnig mikið til umræðu. Hann sagði sjálfur að hann hefði farið heim til Zingara og síðan komið heim þar sem hann skipti um föt þar sem hann hafði blotnað út af rigningunni. Konuna minnti að hann hefði farið í sturtu eða að minnsta kosti heyrt vatn renna. Hún var ítrekað spurð hvort hún hefði þvegið fötin hans og þá sér í lagi hvíta Nike-skó sem hann var í þetta kvöld. Eftir þó nokkrar spurningar sagðist hún ekki hafa þvegið þá en þau hafi líklegast losað sig við skóna þessa helgi. Þau hafi verið að undirbúa flutninga til Grikklands mánuði seinna og losað sig því við töluvert af eignum sínum. Eiginkonan tók fram að hún væri almennt dugleg að þvo föt og gestir hefðu á orði að þvottavélin væri alltaf í gangi. Hún var einnig spurð hvort Ntantes hefði verið duglegur að þvo þvott. „Þegar ég hef beðið hann um það,“ sagði hún og mátti sjá að Ntentas brosti og hló lágt. Myndi ekki kjósa hann sem barnapíu Konan sagðist einungis hafa hitt Zingara einu sinni þegar þau voru bæði á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur. Hún hafi hins vegar heyrt mikið af honum. „Ég hef alltaf upplifað hann sem manneskju sem hefur ekki hagað sér nógu vel,“ sagði hún. „Þú myndir ekki vilja að hann myndi passa barnið þitt.“ Hún lýsti sambýlismanni sínum til sex ára hins vegar sem rólegum manni.
Manndráp á Skjólbraut í Kópavogi Dómsmál Kópavogur Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Sjá meira