Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar 29. september 2026 15:02 Á hverju ári er talsvert miklu magni af þorski landað utan kvóta. Á síðasta ári var 4.579 tonnum af þorski landað í svo kallaðan Verkefnasjóð sjávarútvegsins (VS-afli) og telst hann ekki með almennum aflaheimildum. Útgerðir hafa heimild til að landa allt fimm prósentum af bolfiski sem VS-afla sem dregst ekki frá aflaheimildum þeirra. Úrræðinu er ætlað að koma í veg fyrir brottkast á minni og verðminni þorski. Í sjálfu sér er því mjög jákvætt markmið á bakvið þetta úrræði. Togaraútgerðir eru stórtækastar í að nýta sér úrræðið og lönduðu um 2.000 tonnum í VS-afla á síðasta ári. Það er háðulegt að ein útgerð sem landaði um 60 prósentum af þessum umframafla (1.200 tonnum) hefur beitt sé hvað harðast gegn öllum sveigjanleika í fiskveiðikerfinu. Auk þeirra 4.579 tonna sem veiddust í VS-pottinn á síðasta ári má varlega áætla að umframaflinn sé margfalt meiri þegar talin eru tonnin sem fara fram hjá í endurvigtun á afla sem landað er inn í vinnslur í eigu útgerða. Ríkisendurskoðun telur að umtalsvert og kerfislægt misræmi sé á vigt afla þegar eftirlitsmenn eru viðstaddir vigtun annars vegar og þegar þeir eru ekki við eftirlit hins vegar. Ég talsmaður þess að auka megi veiðar á þorski. Margt bendir til að þorskurinn sé vannýttur. Það sést m.a. á lítilli meðalþyngd eftir aldri. Þá er ég sömuleiðis á móti því að setja sjómenn í þá stöðu að henda fiski. Það er mikilvægt að halda í öll úrræði sem minnka brottkast og þau mætti efla. Að sama skapi er orðið löngu tímabært að hætta leikaraskap með endurvigtun þannig að viktun á lönduðum afla verði undantekningarlaust í höndum óháðra aðila. Eðlilegast væri að hækka aflaregluna sem úthlutun veiðiheimilda byggir á. Nýta síðan það svigrúm sem þar myndast til nýliðunar í útgerð og byggðaaðgerða. Til dæmis með opum svæðum til fiskveiða. Margir standa í þeirri trú að nákvæm lífvísindi og prófanir séu grunnurinn að aflareglu í þorski sem alls ekki megi hnika til. Aflareglan kveður á hversu mikið er ráðlegt að veiða án þess að ganga á hrygningarstofn þorsksins og var fyrst gefin út árið 1994. Vinnuhópurinn sem samdi regluna var að meirihluta skipaður af viðskipta- og hagfræðingum, auk skordýrafræðings, tölfræðings en aðeins einn fiskifræðingur var í hópnum. Það ætti því ekki að koma á óvart að með aflareglunni er hvorki horft til stöðu annarra nytjastofna né lífkennitalna á borð við meðalþyngd fisks eftir aldri. Á þeim rúmu þrjátíu árum sem aflareglan hefur verið notuð hefur hún aldrei skilað tilætluðum árangri og markmiðum um stækkun þorskstofnsins. Margt bendir til að veiðar úr stofninum séu ekki ráðandi þáttur í sveiflum í stofnstærð. Þrátt fyrir aðhaldssama aflareglu eru miklar sveiflur í stofninum en afli hefur á sama tíma stöðugt minnkað frá því sem áður var. Þegar regla sem byggt hefur verið á í rúma þrjá áratugi hefur ekki gefist vel er tímabært að endurskoða regluverkið. Það er augljóst. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar