Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 29. september 2026 11:01 Kostnaður túlkaþjónustu borgarinnar þrefaldast á aðeins fimm árum. Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna túlkaþjónustu hefur rokið upp. Að frádregnum endurgreiðslum ríkisins og kostnaði vegna táknmálstúlkunar nam hann 55,3 milljónum króna árið 2020. Árið 2025 var hann kominn í tæplega 170 milljónir. Kostnaður borgarinnar hefur þannig þrefaldast á fimm árum. Samt eru engin skýr tímamörk á því hversu lengi skattgreiðendur eiga að greiða fyrir túlk fyrir einstaklinga sem hafa ekki lært íslensku. Þessi þróun getur ekki haldið áfram. Túlkaþjónusta getur verið nauðsynleg þegar fólk er nýkomið til landsins og í málum þar sem lög eða réttaröryggi krefjast hennar. En hún á að vera tímabundið hjálpartæki, ekki ævilöng opinber þjónusta. Núverandi fyrirkomulag útilokar ekki að skattgreiðendur borgi fyrir túlkaþjónustu sjö, níu eða jafnvel fleiri árum eftir að einstaklingur flytur til landsins. Það er fráleitt. Eftir svo langan tíma á að vera sjálfsagt að fólk geti átt grundvallarsamskipti á íslensku eða beri sjálft kostnaðinn af túlki. Íslenskan á að vera forsenda þátttöku Það er eðlileg krafa að fólk læri tungumál þess lands sem það flytur til. Íslenskan er ekki aukaatriði og hún má ekki verða valkvæð í samskiptum við íslensk stjórnvöld. Fólk sem leggur á sig að læra íslensku stendur betur að vígi á vinnumarkaði, er sjálfstæðara og á auðveldara með að taka þátt í samfélaginu. Það getur rætt við kennara barna sinna, skilið opinberar upplýsingar og leyst úr eigin málum án stöðugrar aðstoðar hins opinbera. Hvatinn til íslenskunáms verður lítill ef hið opinbera býður upp á kerfi með ótímabundna, gjaldfrjálsa túlkaþjónustu. Það sendir þau skilaboð að það sé hægt að búa hér árum saman án þess að læra íslensku og senda reikninginn einfaldlega til skattgreiðenda. Það er hvorki aðlögun né inngilding í íslenskt samfélag. Það er uppskrift að aðskildum samfélögum. Kerfið þarf ekki fleiri hvata Ísland á ekki að byggja upp sífellt kostnaðarsamara þjónustukerfi sem gera landið að enn fýsilegri áfangastað fyrir aukinn fjölda innflytjenda. Við eigum nóg með að tryggja húsnæði, skóla, heilbrigðisþjónustu og grunninnviði fyrir þá sem þegar búa hér. Þess vegna leggur Miðflokkurinn til að borgarstjórn skori á ríkisstjórn og Alþingi að breyta lögum og reglum um túlkaþjónustu. Setja þarf skýr tímamörk á gjaldfrjálsa þjónustu og gera notendum að greiða kostnaðinn sjálfir eftir hæfilegan aðlögunartíma. Undanþágur þurfa aðeins að ná til þeirra tilvika þar sem lög krefjast túlkunar, réttaröryggi er í húfi eða einstaklingur getur sannanlega ekki lært málið vegna fötlunar eða alvarlegra veikinda. Undanþágurnar mega ekki éta upp meginregluna. Norðurlöndin hafa þegar stigið skref Í Danmörku greiða einstaklingar sjálfir gjald fyrir túlkaþjónustu í heilbrigðiskerfinu eftir þriggja ára búsetu, með afmörkuðum undanþágum. Í Svíþjóð hefur verið lagt til túlkunargjald eftir sex ára skráða búsetu. Núverandi ríkisstjórn og borgarstjórn segist ætla að hagræða í ríkisrekstri. Þá er upplagt að byrja á því að hætta að reka opin kerfi án tímamarka, kostnaðarþaks eða skýrra krafna til notenda. Túlkaþjónusta getur verið brú til skamms tíma en á ekki að vera varanleg áskrift á kostnað almennings. Setjum þak á þessa vitleysu og gerum skýra kröfu um að þeir sem ætla að byggja sér sína framtíð hér læri íslensku. Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar