Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Freyja Þórisdóttir skrifar 27. september 2026 18:03 Almenningssamgöngur hafa ekki gengið smurt fyrir sig í höfuðborg Taílands síðustu daga en úrkoman hefur verið stanslaus. AP Þúsundir hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín í höfuðborg Taílands vegna flóða en útlit er fyrir að það fari að draga úr rigningu á svæðinu. Neyðarskýli hafa verið sett upp víða um borgina og vegum hefur verið lokað en unnið er að því að veita vatni burt eins fljótt og auðið er. Borgarstjóri Bangkok, Chadchart Sittipunt, hefur sagt að úrkoma haldi áfram að minnka en hann varaði borgarbúa þó við því að vatnsborð myndi hækka enn meira á sumum svæðum í borginni þar sem vatn héldi áfram að streyma inn frá nærliggjandi svæðum. Er þetta meðal þess sem erlendir miðlar á borð við fréttaveituna AP greina frá. Unnið er að því að veita vatni úr úr borginni. AP Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í flóðunum síðustu tíu daga en stöðug og mikil úrkoma svo dögum skiptir hefur valdið víðtækum flóðum og alvarlegum truflunum í Bangkok, sem hefur haft áhrif á umferð og fyrirtæki, en uppsöfnuð úrkoma hefur farið yfir þrjátíu sentímetra á mörgum svæðum. Ert þú í Taílandi eða þekkir þú einhvern sem er á svæðinu? Áttu myndefni? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Veðurstofa Taílands sagði að enn væri búist við miðlungsmikilli til mikilli rigningu á sunnudag í nokkrum landshlutum en búist væri við að aðstæður myndu batna á mánudag, er fram kemur í frétt AP. Mikill fjöldi fólks hefur gist í neyðarskýlum síðustu nætur þar sem heimili margar eru nánast á bólakafi í vatni.AP Þá hafi um þrjú þúsund manns gist í neyðarskýlum víða um borgina síðustu nætur en á nokkrum láglendum svæðum sem séu enn á kafi hafi miklar skemmdir orðið vegna flóðsins á heimilum fólks. Ríflega hálf milljón manns í tuttugu og sex héruðum Tælands hefur orðið fyrir áhrifum af flóðum, sérstaklega í mið- og austurhluta landsins, samkvæmt upplýsingum frá almannavarna- og viðbragðsdeildinni. Hér fyrir neðan má sjá stutt myndskeið frá því í gær, laugardaginn 26. september. Taíland Náttúruhamfarir Samgöngumál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira
Borgarstjóri Bangkok, Chadchart Sittipunt, hefur sagt að úrkoma haldi áfram að minnka en hann varaði borgarbúa þó við því að vatnsborð myndi hækka enn meira á sumum svæðum í borginni þar sem vatn héldi áfram að streyma inn frá nærliggjandi svæðum. Er þetta meðal þess sem erlendir miðlar á borð við fréttaveituna AP greina frá. Unnið er að því að veita vatni úr úr borginni. AP Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í flóðunum síðustu tíu daga en stöðug og mikil úrkoma svo dögum skiptir hefur valdið víðtækum flóðum og alvarlegum truflunum í Bangkok, sem hefur haft áhrif á umferð og fyrirtæki, en uppsöfnuð úrkoma hefur farið yfir þrjátíu sentímetra á mörgum svæðum. Ert þú í Taílandi eða þekkir þú einhvern sem er á svæðinu? Áttu myndefni? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Veðurstofa Taílands sagði að enn væri búist við miðlungsmikilli til mikilli rigningu á sunnudag í nokkrum landshlutum en búist væri við að aðstæður myndu batna á mánudag, er fram kemur í frétt AP. Mikill fjöldi fólks hefur gist í neyðarskýlum síðustu nætur þar sem heimili margar eru nánast á bólakafi í vatni.AP Þá hafi um þrjú þúsund manns gist í neyðarskýlum víða um borgina síðustu nætur en á nokkrum láglendum svæðum sem séu enn á kafi hafi miklar skemmdir orðið vegna flóðsins á heimilum fólks. Ríflega hálf milljón manns í tuttugu og sex héruðum Tælands hefur orðið fyrir áhrifum af flóðum, sérstaklega í mið- og austurhluta landsins, samkvæmt upplýsingum frá almannavarna- og viðbragðsdeildinni. Hér fyrir neðan má sjá stutt myndskeið frá því í gær, laugardaginn 26. september.
Ert þú í Taílandi eða þekkir þú einhvern sem er á svæðinu? Áttu myndefni? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Taíland Náttúruhamfarir Samgöngumál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira