Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 26. september 2026 18:23 Anton/Vísir Íslenska karlalandsliðið mætti Eistlandi í fyrstu umferð C-deild Þjóðardeildarinnar í dag. Það er óhætt að segja að úrslitin hafi verið mikil vonbrigði eftir 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í dag.
Við getum þakkað Hákoni Rafni Valdimarssyni fyrir að ekki fór verr í dag en hann var besti maður Íslenska liðsins í dag. Hákon Rafn Valdimarsson, markmaður [9] - Maður leiksins Varði frábærlega vítaspyrnu frá Kevor Palumets og tók tvö dauðafæri frá Eistum. Gat lítið gert við markinu sem hann fékk á sig og steig vel inn þegar þess þurfti. Guðlaugur Victor Pálsson, hægri bakvörður [5] Skilaði góðri varnarvinnu en kom lítið frá honum sóknarlega í dag. Átti eitt skallafæri eftir horn sem fór yfir markið. Daníel Leó Grétarsson, miðvörður [4] Tapar einvíginu við Maksim Paskotsi í jöfnunarmarki Eista. Átti einhverjar tæklingar þegar Eistar reyndu að sækja hratt en þetta einvígi sem hann tapaði kostaði sitt. Stefán Teitur Þórðarson, miðvörður [6] Komst þokkalega vel frá sínu í dag. Ekki vanur því að spila í hafsent en leysti það ágætlega í dag. Mikael Egill Ellertsson, vinstri bakvörður [5] Fór heldur lítið fyrir honum í þessum leik. Reyndi nokkur hlaup en kom lítið frá honum sóknarlega. Átti eina flotta fyrirgjöf í leiknum en annars lítið sem hægt er að taka fyrir. Jón Dagur Þorsteinsson, hægri vængmaður [6] Var einn okkar hættulegasti maður í fyrri hálfleiknum. Skapaði oft ursla fyrir varnarmenn Eista en var ekki eins áberandi í seinni hálfleiknum. Hákon Arnar Haraldsson, miðjumaður [7] Lagði upp fyrsta mark leiksins með frábærri fyrirgjöf á Andra Lucas Guðjohnsen. Fór allt í gegnum hann sóknarlega eftir að Albert fór útaf og hann vann vel fyrir liðið. Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður [5] Var að reyna finna glufur á vörn Eista en komst lítið áleiðis. Vann vel fyrir liðið á miðsvæðinu en á klárlega meira inni. Albert Guðmundsson, vinstri vængmaður [6] Var líflegur í þennan hálftíma sem hann náði inn á vellinum. Var hættulegur þegar hann náði að snúa á Eistana en því miður varð hann að fara meiddur af velli eftir hálftíma leik. Orri Hrafn Óskarsson, framherji [4] Oft verið meira áberandi en í dag. Var ekki mikið í boltanum, fékk einhver hálffæri en náði ekki að ógna að marki að neinu viti og kost ekki alveg í takt við leikinn. Andri Lucas Guðjohnsen, framherji [8] Skoraði fyrsta mark leiksins með frábærum skalla eftir góða fyrirgjöf frá Hákoni Haraldssyni. Boltarnir sem Íslenska liðið reyndi að dæla fyrir markið soguðust að honum og hann var alltaf líklegur. Varamenn: Ísak Snær Þorvaldsson kom inn fyrir Albert Guðmundsson á 30. mínútu [4] Kom inn fyrir meiddan Albert Guðmundsson. Var dæmdur brotlegur innan teigs sem gaf vítaspyrnu en Hákon varði hana frábærlega. Gerði ekki mikið sóknarlega heldur og bætti litlu við. Gylfi Þór Sigurðsson kom inn fyrir Ísak Bergmann Jóhannesson á 75. mínútu [5] Var að reyna berja menn áfram. Kom með ágætis spyrnur fyrir markið en Íslenska liðið náði ekki að gera sér mat úr því. Arnór Sigurðsson kom inn fyrir Jón Dag Þorsteinsson á 75. mínútu [5] Bætti litlu við með sinni innkomu. Kristall Máni Ingason kom inn fyrir Andra Lucas Guðjohnsen - Spilaði of lítið Logi Tómasson kom inn fyrir Mikael Egil Ellertsson - Spilaði of lítið
Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Sjá meira