Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Samúel Karl Ólason skrifar 25. september 2026 07:52 Hermenn Sádi-Arabíu á sýningu fyrr í mánuðinum. AP/Baraa Anwer Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa boðað yfirmenn herafla Tyrklands og Pakistan á fund þar sem ræða á hvernig ríkin tvö geta stutt Sáda vegna árása Húta í Jemen. Æðstiklerkur Sádi-Arabíu hefur kallað eftir því að hermenn konungsríkisins verði tilbúnir til að leggja lífið að veði í baráttunni gegn Hútum.
Ráðamenn í ríkjunum þremur skrifuðu nýlega undir varnarsamkomulag en samkvæmt því eiga hin ríkin að koma til aðstoðar þegar árás er gerð á eitt þeirra. Hútar, sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran, hafa gert umfangsmiklar árásir á sveitir ríkisstjórnar Jemen, sem studd er af Sádum. Þeir hafa einnig gert fjölda árása á olíuvinnsluinnviði og önnur skotmörk í Sádi-Arabíu að undanförnu og reynt að takmarka olíuflutninga Sáda um Rauðahaf. Í gær sögðust leiðtogar Húta hafa skotið fjölda eldflauga og sjálfsprengidróna að skotmörkum í Sádi-Arabíu. Yfirvöld í konungsríkinu sögðust hafa skotið niður sex skotflaugar frá Jemen en skömmu áður hafði neyðarástandi verið lýst yfir í borgum eins og Mecca, Jeddah og Yanbu, samkvæmt frétt Reuters. Fréttaveitan segir einnig frá yfirlýsingu frá æðstaklerki Sádi-Arabíu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi. Þá kallaði hann eftir því að hermenn ríkisins byggju sig undir það að leggja lífið að veði í baráttu gegn Hútum, þar sem búið væri að koma þeim frá völdum. Þá funduðu utanríkisráðherrar Sádi-Arabíu, Tyrklands og Pakistan í gær og ræddu þeir meðal annars hvernig formenn herforingjaráða ríkjanna gætu haft skyndifund. Þar ættu þeir að ræða hvernig Tyrkir og Pakistanar gætu aðstoðað Sáda. Segir Húta sína eigin herra Ráðamenn í Sádi-Arabíu hafa farið um víðan völl í leit að aðstoð gegn Hútum. Um síðustu helgi hætti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, við árásir gegn Hútum á síðustu stundu. Þá munu Sádar hafa fengið ráðamenn í Kína til að biðja leiðtoga klerkastjórnarinnar um að halda aftur af Hútum. Það virðist ekki hafa skilað árangri. Sjá einnig: Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Yfirvöld Í Frakklandi hafa ákveðið að senda hermenn til Sádi-Arabíu. Þar eiga þeir að koma fyrir ratsjám og loftvarnarkerfum til að verja mikilvæga innvið í Yanbu, sem er mikilvæg hafnarborg við Rauðahaf. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segist ekki vilja útiloka frekari hernaðarastoð við Sádi-Arabíu, eftir því hvernig ástandið þróast. Masoud Pezeshkian, forseti Íran, sagði í viðtali við Fox News í gær að Hútar bæru ábyrgð á eigin aðgerðum. Þeir væru ekki eingöngu handbendi klerkastjórnarinnar. AP fréttaveitan sagði þó frá því á dögunum að Hútar hefðu notið umfangsmikils stuðnings frá íranska byltingarverðinum á undanförnum vikum, sérstaklega þegar Hútum tókst að leggja undir sig stóran hluta strandlengju Jemen við Rauðahaf. Samkvæmt AP voru meðlimir byltingarvarðarins með Hútum í Jemen þegar skyndisókn þeirra var gerð. Langvarandi átök í Jemen Hútar stjórna stórum hluta Jemen, þar á meðal höfuðborginni Sana, en þeir eru studdir af klerkastjórninni í Íran. Sádar hafa stutt alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen gegn Hútum um árabil. Skæð borgarastyrjöld stóð yfir um langt skeið í Jemen en fjögurra ára vopnahlé liðaðist í sundur í sumar og hafa átökin aukist töluvert síðan þá. Hútar hófu í sumar árásir á olíuvinnsluinnviði og olíuflutningaskip Sádi-Arabíu, með því markmiði að koma í veg fyrir flutninga Sáda á olíu um Rauðahaf. Þá gerðu Hútar umfangsmikla sókn í vesturhluta Jemen fyrr í þessum mánuði og lögðu undir sig stóran hluta strandlengju landsins við Rauðahaf. Þeir landvinningar hafa gert þeim mun auðveldara að takmarka siglingar um Rauðahaf, sem var orðin helsta útflutningsleið Sáda fyrir olíuafurðir vegna takmarkana á siglingum um Hormússund. Árásir á olíuleiðslu Sáda sem notuð var til að flytja olíu að ströndum Rauðahafs komu svo enn frekar niður á útflutningi ríkisins.
Sádi-Arabía Jemen Pakistan Tyrkland Hernaður Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira