Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára Andri Broddason skrifar 24. september 2026 15:46 Brian Riemer var ekki heillaður af Erling Haaland þegar hann var í prufu hjá FC København. Samsett/Getty Brian Riemer, þjálfari danska landsliðsins, var að þjálfa U19 lið FC København þegar ungur norskur framherji var í prufu hjá liðinu í eina viku. Sá framherji var Erling Haaland og mætast þeir í kvöld í Þjóðadeildinni þegar Noregur tekur á móti Danmörku.
Árið 2017 var Haaland aðeins 16 ára og var að leita að næsta skrefi á ferlinum sínum. Hann var leikmaður Bryne í Noregi en fór í heila viku í prufu hjá danska stórliðinu FC København. Erlendir leikmenn þurfa oft að gjörheilla þjálfara svo þeir fái meiri athygli en dönsku strákarnir og það náði Haaland ekki að gera. Riemer tók þó fram að það var ekki hann sem tók ákvörðunina að bjóða Haaland ekki samning hjá FC København. Honum finnst þó gaman eftir á að hugsa að hann hafi verið með gull í höndunum sem hann hafi ekki vitað af. Haaland var aðeins 16 ára og var ekki búinn að þróast í leikmanninn sem hann er í dag. Samkvæmt Riemer var norski framherjinn með góða hæfileika en það var ekki búið að þjálfa hann nóg. Hann var því mjög frábrugðinn leikmönnum sem voru búnir að vera í umhverfi FC København. Stale Solbakken, þjálfari norska landsliðsins, var á þessum tíma þjálfari meistaraflokks FCK og sagði að Haaland hefði staðið sig vel en ekki verið mikið betri en aðrir. „Hann sýndi að hann gæti verið þarna og stóð sig vel, en það var ekki eins og hann væri tveimur stigum betri en allir aðrir. Hann hefði auðveldlega getað spilað með U19-liðinu en við vorum ekki að fara að reka alla út fyrir hann,“ sagði Solbakken í viðtali við NRK. Noregur og Danmörk mætast í A-deild Þjóðadeildarinnar en þessi lið eru í riðli með Portúgal og Wales. Lengi hefur verið mikill rígur milli þessara landa og má því búast við hita í leik kvöldsins.
Norski boltinn Danski boltinn Danmörk Noregur Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Sjá meira