Það sem ekki sést í Excel-skjali Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og skrifa 23. september 2026 09:30 Fjármálaráð gegnir mikilvægu hlutverki við yfirferð fjármála ríkisins. Það leggur meðal annars mat á fjármálastefnu stjórnvalda með sjálfbærni og stöðugleika opinberra fjármála að leiðarljósi. Það er því eðlilegt að taka ábendingar ráðsins alvarlega. En það er líka mikilvægt að átta sig á hvað mat af þessu tagi segir okkur og segir okkur ekki. Það er hægt að reikna með nokkurri nákvæmni hvað tiltekin ákvörðun kostar ríkissjóð á næsta ári. Það er hins vegar miklu erfiðara að áætla afleiddan kostnað til framtíðar af því að spara á röngum stað og tíma. Það er síðan hlutverk stjórnmálanna að leggja mat á slíka þætti. Hvað kostar að gera ekki neitt? Tökum einfalt dæmi. Barn sem glímir við alvarlegan vanda og fær ekki nauðsynlega aðstoð vegna þess að úrræði vantar hverfur ekki úr bókhaldinu. Vandinn getur aukist og komið fram síðar á skólagöngunni, í heilbrigðiskerfinu, félagsþjónustunni eða almannatryggingakerfinu. Útgjöldunum hefur verið frestað. Þau hafa ekki endilega horfið. Sama hugsun á við um geðheilbrigðisþjónustu og fjölmarga aðra þætti velferðarkerfisins. Sparnaður í dag getur orðið dýrkeyptur á morgun. Það er miklu erfiðara að setja þessi langtímaáhrif inn í töflureikni. Hvað viljum við verja? Þessi sýn birtist í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að tryggja að lífeyrisgreiðslur til eldra fólks, öryrkja og fatlaðs fólks fylgi launavísitölu. Slík ákvörðun kostar ríkissjóð vissulega fjármuni. En hún byggist á þeirri pólitísku ákvörðun að fólk sem lifir á greiðslum almannatrygginga eigi ekki að dragast aftur úr öðrum í samfélaginu. Þarna vegast því á fleiri sjónarmið en þau sem sjást í bókhaldinu. Þetta snýst líka um jöfnuð og hvernig samfélag við viljum byggja. Þetta er pólitísk forgangsröðun. Á sama tíma og ríkisstjórnin hefur ákveðið að bæta kjör þeirra sem fá greiðslur úr almannatryggingum hefur verið gripið til fjölmargra aðhaldsaðgerða með það að markmiði að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári. Fjármálastefnan gerir jafnframt ráð fyrir aðhaldssamri þróun útgjalda og lækkandi skuldahlutfalli ríkissjóðs af landsframleiðslu. Það er því vel hægt að reka ríkissjóð af ábyrgð og verja velferðina á sama tíma. Meira en bókhald Hér liggur líka mikilvægur munur á hlutverki Fjármálaráðs og hlutverki stjórnmálanna. Fjármálaráð á að leggja hlutlægt og óháð mat á sjálfbærni og stöðugleika opinberra fjármála. Það er hins vegar hlutverk kjörinna fulltrúa að ákveða forgangsröðunina og marka stefnu um það samfélag og þá velferð sem við viljum byggja. Þeir þurfa jafnframt að vega og meta afleiðingar ákvarðana fyrir ólíka hópa og samfélagið allt til lengri tíma. Það sem kann að líta út eins og útgjöld í dag getur verið fjárfesting þegar horft er lengra fram á veginn. Mannúð og ábyrg ríkisfjármál þurfa nefnilega ekki að vera andstæður. Stundum er mannúðin einfaldlega besta hagfræðin. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun