Littler hótar að hætta að keppa í Hollandi Stefán Árni Pálsson skrifar 20. september 2026 11:46 Luke Littler á móti fyrr á þessu ári. Vísir/Peter Byrne/PA Images via Getty Images Luke Littler er orðinn langþreyttur á framkomu áhorfenda í Hollandi og segir að hann muni hugsanlega hætta að taka þátt í mótum þar verði baulið og flautið ekki úr sögunni.
BBC greinir frá. Heimsmeistarinn þurfti að þola óvægnar móttökur á World Series of Darts Finals í Amsterdam um helgina. Dómarinn stöðvaði meðal annars leik Littler gegn Nathan Aspinall í átta liða úrslitum og bað áhorfendur að hætta ólátunum. Littler hafði einnig verið baulað á í leiknum gegn heimamanninum Danny Noppert deginum áður. Hinn 19 ára Englendingur hefur áður lent í svipuðum aðstæðum í Þýskalandi og hefur af þeim sökum hætt að taka þátt í mótum þar. Aðspurður hvort hann væri tilbúinn að gera slíkt hið sama í Hollandi svaraði hann einfaldlega: „100 prósent.“ Littler segir enga ástæðu til að leggja á sig ferðalög og keppni ef hann eigi von á því að vera baulað á. „Ef Hollendingarnir halda þessu áfram þá ætla ég ekki að fara á nein Euro Tour-mót þar. Það er bara enginn tilgangur með því að ferðast og eyða tíma mínum í þetta á meðan verið er að baula á mig,“ sagði Littler. Hann segir jafnframt að hann hafi hætt að heilsa áhorfendum eftir leiki helgarinnar. „Ég vil bara spila pílu og auðvitað gefa eiginhandaráritanir. Síðustu tvö kvöld hef ég ekkert gert, bara gengið af sviðinu. Það er enginn tilgangur í því að þakka öllum þegar þeir eru að baula á mig.“ Littler á að keppa á Evrópumótinu í Dortmund í október og verður því fróðlegt að sjá hvort viðhorf hans til keppni í Þýskalandi hafi breyst.
Pílukast Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Nottingham Forest - Arsenal | Gengið skelfilega að skora á þessum velli Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sjá meira