Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Sindri Sverrisson skrifar 18. september 2026 13:01 Pálmi Rafn Pálmason segir lengi hafa staðið til að koma upp myndavélakerfi á Meistaravöllum og það sé í raun tilviljun að það hafi gerst strax eftir skemmdarverkin um síðustu mánaðamót. Samsett/Vísir/Vöruvernd KR-ingar eru klárir fyrir annan risaleik við Víkinga á skömmum tíma, í Bestu deildinni í fótbolta, og hafa engan áhuga á að sjá gestina fagna Íslandsmeistaratitli á morgun. Myndavélakerfi hefur verið sett upp á Meistaravöllum eftir skemmdarverkin fyrir síðasta leik liðanna.
Það kraumar í pottinum fyrir slag KR og Víkings sem hefst klukkan 14 á morgun, í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Sigur myndi tryggja Víkingi Íslandsmeistaratitilinn. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í bráðfjörugum leik í byrjun mánaðarins, þegar yfir 4.000 áhorfendur mættu á Meistaravelli, en nóttina fyrir leik höfðu óprúttnir aðilar málað hluta stúkunnar og varamannaskýli í Víkingslitum. Lengi staðið til að setja upp myndavélar Á þeim skamma tíma sem liðinn er frá leiknum hefur nú verið komið upp öryggismyndavélakerfi á Meistaravöllum en Pálmi Rafn Pálmason, framkvæmdastjóri KR, segir það þó ekki beina afleiðingu af skemmdarverkunum. „Nei, svo sem ekki. Þetta hefur verið planið hjá okkur lengi og það er að einhverju leyti tilviljun að þetta gerist akkúrat núna. En það er fínt að þetta sé komið í gagnið núna. Við horfum bara fram á veginn,“ segir Pálmi. Fá Víkingar að fagna titlinum? Samkvæmt uppgefnum tölum voru 4.337 áhorfendur á leik KR og Víkings 1. september, á stórkostlegum fótboltaleik, og fulltrúar liðanna hafa skipst á skotum eftir þann slag svo búast má við gríðarlegum átökum á morgun. Pálmi segir KR-inga búna undir góða mætingu. „Ég reikna bara með einhverju svipuðu. Þetta er risastór leikur líka og þó að einhverjir haldi að það sé mögulega að litlu að keppa þá er að töluverðu að keppa fyrir bæði lið. Fyrir utan það eru yfirleitt alltaf frábærir fótboltaleikir á milli þessara liða sem gaman er að horfa á.“ En fá Víkingar gott svigrúm til að fagna titlinum á Meistaravöllum ef þeir vinna á morgun? „Nei, það eru aðrir viðburðir að fara í gang og þeir verða bara að drífa sig heim,“ segir Pálmi laufléttur en bætir við: „Nei, nei, en við ætlum bara ekki að leyfa þeim að tryggja titilinn á okkar heimavelli. Ég veit að strákarnir hugsa þannig, að við ætlum bara að vinna þennan leik, og við erum ekki að spá í neinu öðru.“
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Sjá meira